Heilsuræktarstöðin Hreyfing í Glæsibæ hagnaðist um 162 milljónir króna í fyrra, samanborið við 103 milljónir árið áður. Tekjur námu 1.271 milljón og jukust um 11,6% milli ára. Eignir voru bókfærðar á 492 milljónir um áramótin og eigið fé nam 257 milljónum. Stjórn leggur til að 130 milljónir verði greiddar í arð vegna rekstrarársins en árið áður nam arðgreiðslan 120 milljónum. Grímur Karl Sæmundssen er stærsti hluthafi og stjórnarformaður Hreyfingar en Ágústa Johnson er framkvæmdastjóri. Lykiltölur / Alfreð ehf. 2025 2024 Tekjur 646 654 Eigið fé 348 296 Eignir 446 397 Afkoma 147 122 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .