Innlent | mbl | 24.5.2026 | 18:38 „Icelandair ber algjörlega ábyrgð“ Jón Þór segir flugumhverfið hafa verið mjög krefjandi frá tímum Covid-faraldursins. Samsett mynd/mbl.is/Hari/Árni Sæberg Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Annarri ferð aflýst Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Flugmenn Icelandair neita að stökkva til » Fleiri tengdar fréttir Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir alla flugmenn Icelandair standa sínar vaktir og og varavaktir. Ástæðu þess að ítrekað hefur ekki tekist að manna áhafnir véla félagsins síðustu daga, megi meðal annars rekja til áætlanagerðar og reksturs félagsins. Icelandair beri alla ábyrgð á því að manna áætlunina. Verið sé að reyna að hámarka nýtingu og að hugsanlega hafi verið gengið of langt í þeim efnum varðandi álag á flugmenn. Kröfur þeirra í kjaraviðræðum snúist ekki um laun, heldur að þeir geti gætt meira jafnvægis á milli vinnu og einkalífs. Þeir hafi gefið mikið eftir í samningum sínum á tímum Covid og margir hafi lengi verið undir miklu vinnuálagi. „Við áttum góðan fund á föstudaginn og bara miðaði vel þar og erum með svona smá verkefni, skulum kalla það heimavinnu, frá ríkissáttasemjara sem við erum að vinna í yfir helgina og ætlum að hittast aftur á morgun,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna , við mbl.is um stöðu kjaraviðræðna FÍA og Icelandair. Hann þverktekur fyrir að óformlegar verkfallsaðgerðir séu í gangi hjá flugmönnum. Ekki sé hægt að kenna þeim um mönnunarvandræði félagsins. „Flugmenn vinna óreglulega vaktavinnu og eru með níu frídaga á mánuði og þar af eitt helgarfrí og við stjórnum ekki hvenær þessir frídagar eru eða hvenær við fáum helgarfríið þannig að menn hafa afskaplega litla stjórn á því hvenær þeir geta ráðstafað frídögum. Það er svona svolítið stóra málið í þessu.“ Frétt af mbl.is Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Flugumhverfið krefjandi frá tímum Covid Segir hann umhverfið hafa verið mjög krefjandi frá tímum Covid-faraldursins þar sem flugmenn hafi gefið eftir í samningum þegar að hann skall á. „Flugmenn gáfu eftir í samningum þegar að Covid skall á, tuttugu og fimm prósent af sínum kjörum, að hluta til í formi launa en að langstærstum hluta til í formi lengri vakta, minni hvíldar, gáfum eftir helgarfrí og gáfum eftir orlofsdaga. Þegar menn gera svona stórar breytingar er erfitt að sjá fyrir hvaða áhrif það hefur langt fram í tímann.“ Bendir hann þó einnig á að samkeppnisumhverfið sé alþjóðlegt í þessum bransa og því þurfi þau að hreyfa sig í takt við það, en gæta þurfi ákveðins jafnvægis. „Við Íslendingar erum nú ekkert ókunnug því að vera vertíðarfólk og að taka á því yfir vertíðina en það er ákveðinn hópur hjá Icelandair sem hefur verið undir mjög miklu vinnuálagi í mjög langan tíma og við þurfum að finna leiðir til að fá jafnvægi á þetta.“ Frétt af mbl.is Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Icelandair ber algjörlega ábyrgðina Undanfarið hefur flugferðum Icelandair verið aflýst, þá helst vegna manneklu. Í gær var sjö flugferðum félagsins aflýst, þar af fjórum vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Fyrr í dag var greint frá því að enn einu fluginu hefði verið aflýst, en það var vegna þess að vél vantaði, sem má rekja til tafa á afhendingu á Airbus-vél til félagsins. Frétt af mbl.is Annarri ferð aflýst Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í viðtali við mbl.is í gær þetta vera stöðu sem þau hefðu ekki upplifað áður. Hann hefur áður sagt að margt bendi til þess að erfiðara sé að manna áhafnir vegna óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna. Jón Þór tekur þó fyrir það og neitar því að einhverjar aðgerðir séu í gangi. „Nei, við erum búin að svara því oft í fjölmiðlum að það eru engar aðgerðir í gangi. Icelandair ber algjörlega ábyrgð á því að manna áætlunina.“ Spurður hvers vegna gangi þá svona illa að manna vaktir um þessar mundir segir hann ástæðuna mögulega tvíþætta. „Annars vegar að þetta er búið að vera mjög langt og viðvarandi ástand og kannski hafa kröfurnar verið um enn meiri nýtingu og svo náttúrulega það að kannski var bara gerð tilraun til að fara inn í sumarið þannig að menn ætluðu að framleiða enn meira á sama fjölda af flugmönnum og kannski erum við bara komin á þröskuld þarna,“ segir Jón Þór. Frétt af mbl.is „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Snýst um áætlanagerðir og rekstur „Það er svo auðvelt að útskýra þetta með því að segja heyrðu flugmenn eru svo latir og mæta ekki í vinnuna, en það eru allir flugmenn að standa allar sínar vaktir og allar sínar varavaktir. Þetta snýr raunverulega bara að áætlanagerðinni og rekstri.“ Vantar ekki bara fleiri flugmenn? „Ég held að stutta svarið sé jú.“ „Þetta snýst ekki um laun, það eru ekki launakröfur flugmanna sem standa í mönnum, það er verið að reyna að hámarka nýtingu og ég held að menn séu kannski bara komnir þangað og kannski erum við búin að ganga aðeins of langt þar.“ Frétt af mbl.is Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Annarri ferð aflýst Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Flugmenn Icelandair neita að stökkva til » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brotist inn á heimili goðsagnarinnar „Icelandair ber algjörlega ábyrgð“ Mun stoðsendingamet Bruno standa? Berglind stækkaði Havarí og skemmti sér vel Elín Klara sænskur meistari Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Byssumaðurinn við Hvíta húsið nafngreindur Aukið eftirlit yfir helgina Mest lesið Í gær Í vikunni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Annarri ferð aflýst Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum Maðurinn kominn í leitirnar Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður 150 skjálftar mælst síðan í gærkvöldi Einn með skotáverka og annar handtekinn „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Afleit reynsla af Skattinum Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Blóðugur reikningur á Tenerife Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Brotist inn á heimili goðsagnarinnar „Icelandair ber algjörlega ábyrgð“ Mun stoðsendingamet Bruno standa? Berglind stækkaði Havarí og skemmti sér vel Elín Klara sænskur meistari Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afleit reynsla af Skattinum Geirfuglinn á lestarstöð í Cincinnati Halda áfram eftir helgi: „Ágætis fundur“ Segir rangfærslur og ærumeiðingar í dómnum Mest lesið Í gær Í vikunni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Annarri ferð aflýst Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum Maðurinn kominn í leitirnar Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður 150 skjálftar mælst síðan í gærkvöldi Einn með skotáverka og annar handtekinn „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Afleit reynsla af Skattinum Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Blóðugur reikningur á Tenerife Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?