Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frederiksen fær stjórnarmyndunarumboð á ný

Read Full Article →

Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku og starfandi forsætisráðherra, fékk rétt í þessu stjórnarmyndunarumboð á ný. Leiðtogar flokkanna á danska þinginu hafa í morgun komið á fund Friðriks konungs, einn af öðrum, og nú hefst þriðja lota stjórnarmyndunarviðræðna. Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hafði umboðið þar til upp úr slitnaði í gær. Þingkosningar voru 24. mars og aldrei áður hefur tekið svo langan tíma í Danmörku að mynda stjórn. Frederiksen heitir því að hafa hraðar hendur við stjórnarmyndunina næstu daga. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna og starfandi forsætisráðherra Danmerkur. Friðrik konungur hefur falið henni á ný að reyna að mynda ríkisstjórn.EPA / Emil Nicolai Helms

Share this article