Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.5.2026 | 16:00 Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Greint var frá því í dag að neyðarskýli Rauða krossins í Borgartúni hefði verið lokað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Lög um útlendinga Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Flestir fengið atvinnuleyfi frá Indlandi Kristrún þurfi að fara að sýna hver ræður Mörgum blöskrar orð forsætisráðherra Góðkunningjar lögreglu sendir úr landi » Fleiri tengdar fréttir Aðgengi þeirra hælisleitenda sem dvalið hafa í neyðarskýli Rauða krossins í Borgartúni er bætt með flutningum í dvalarúrræði heimferða- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra (HOF) í Bæjarhrauni í Hafnarfirði. Úrræðið er ekki brottfararstöð heldur opið úrræði þar sem íbúar geta komið og farið að vild allan sólarhringinn. Neyðarskýli Rauða krossins var aftur á móti lokað yfir daginn, frá klukkan 10-17. Marín Þórsdóttir, verkefnastjóri HOF, segir þetta í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is. Fólkinu sem dvalið hefur í neyðarskýlinu býðst dvalarúrræði HOF í Hafnarfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þjónusta felld niður 30 dögum eftir synjun Jafnframt verður sú breyting að í stað þess að fá tilbúnar, einfaldar máltíðir kvölds og morgna fær fólkið lágmarksframfærslu, um 8.000 krónur á viku, og aðstöðu til að sjá sjálft um matargerð. Það heldur jafnframt áfram að njóta aðgangs að bráðaheilbrigðisþjónustu. Dvalarúrræði HOF er ætlað þeim sem hlotið hafa endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd. Hópurinn sem fluttur var í dag úr neyðarskýli Rauða krossins eru fyrrverandi umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa ekki verið í samstarfi við stjórnvöld um heimferð. Að 30 dögum liðnum eftir synjun hefur þjónusta verið felld niður. Í kjölfarið hafa þeir fengið athvarf í neyðarskýli Rauða krossins, en með þessum breytingum sem áttu sér stað í dag dvelja þeir áfram hjá HOF. Frétt af mbl.is Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markmið frá byrjun að finna varanlegri lausn Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í mars 2025 að ábyrgð á starfsemi neyðarskýlisins flyttist frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins. Í kjölfarið hafi dómsmálaráðherra gert tímabundinn eins árs samning við Rauða krossinn um áframhaldandi rekstur skýlisins sem rennur út 1. júní. Þá segir að markmið samningsins hafi verið að skapa svigrúm til að finna varanlegri og hagkvæmari lausn. Rekstrarkostnaður neyðarskýlisins hafi verið hár, húsnæðið í slæmu ástandi og nýting mjög takmörkuð. Þá hafi Rauði krossinn ítrekað bent stjórnvöldum á að æskilegt sé að finna starfseminni annan farveg og fela öðrum aðila rekstur hennar. Tilfærsla starfseminnar til HOF sé unnin í samráði við dómsmálaráðuneytið og Rauða krossinn. Vinir og stuðningsfólk mótmæltu lokuninni fyrir utan skýlið í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Minna rask á högum þótt þjónustustig verði lægra Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd fá endanlega synjun á umsókn sinni og ákvörðun liggur fyrir um að þeir skuli yfirgefa landið, flytjast þeir úr búsetuúrræðum Vinnumálastofnunar í búsetuúrræði HOF að Bæjarhrauni 16. Þar er þeim veitt þjónusta í allt að 30 daga á meðan undirbúningur heimfarar fer fram, með eða án stuðnings stjórnvalda. Sýni viðkomandi ekki samstarfsvilja eftir þann tíma missir hann rétt til þjónustu samkvæmt lögum um útlendinga. Hingað til hefur hópurinn þá átt kost á að leita í neyðarskýli Rauða krossins í Borgartúni. Með breytingunum geta þeir sem bíða brottvísunar áfram dvalið í sama húsnæði og eru því þegar kunnugir aðstæðum þar. Þannig verður minna rask á högum þeirra, þótt þjónustustig verði lægra og dvalið verði í aðskildum rýmum innan húsnæðisins. Hópurinn sem fluttur var í dag úr neyðarskýli Rauða krossins eru fyrrum umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa ekki verið í samstarfi við stjórnvöld um heimferð. mbl.is/Eggert Jóhannesson Frétt af mbl.is Mælti fyrir brottfararstöð á þingi „Örfáir einstaklingar sem telja má á fingrum annarrar handar“ Ráðuneytið áréttar að fólki er frjálst að dvelja í úrræðunum og að enginn verður fluttur þangað eða neyddur til að dvelja þar. „Þetta eru örfáir einstaklingar sem telja má á fingrum annarrar handar. Þeir fá gistiaðstöðu og aðgang að sameiginlegum rýmum sem þeir geta nýtt yfir daginn. Ólíkt fyrirkomulaginu í neyðarskýlinu verður þeim ekki gert að yfirgefa húsnæðið yfir daginn,“ segir í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is. Þeir hafi aðgang að sérfræðingum og ráðgjöfum á vegum HOF vegna undirbúnings brottfarar og fái sem fyrr segir fæðispeninga sem samsvara þeirri upphæð sem aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á, auk nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Þá sé úrræðið eingöngu hugsað fyrir þá sem hafa misst rétt á þjónustu á grundvelli 33. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 sem kveður á um að þeir sem fá synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og sýna ekki samstarfsvilja við brottvísun missi rétt til þjónustu 30 dögum eftir að ákvörðun liggur fyrir. Barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu eru undanþegnir ákvæðinu. Dómsmálaráðuneytið áréttar að fólkinu er frjálst að dvelja í úrræðunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Lög um útlendinga Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Flestir fengið atvinnuleyfi frá Indlandi Kristrún þurfi að fara að sýna hver ræður Mörgum blöskrar orð forsætisráðherra Góðkunningjar lögreglu sendir úr landi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Móðirin fylltist viðbjóði Árni nýr stjórnarformaður Skarphéðinn verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur Kvarta til Persónuverndar vegna Creditinfo Fær stúku nefnda eftir sér Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Gagnrýna hvata örorkukerfisins Hildur fundar í kvöld og á morgun Skýrslan afhjúpar stöðuna: „Ekkert jafnræði“ Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Móðirin fylltist viðbjóði Árni nýr stjórnarformaður Skarphéðinn verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur Kvarta til Persónuverndar vegna Creditinfo Fær stúku nefnda eftir sér Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn í meirihlutaviðræður Halda áfram eftir helgi: „Ágætis fundur“ Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article