Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu en stefnt að verklokum í næstu viku

Read Full Article →

Von er á talsverðri umferð víða um land um hvítasunnuhelgina. Hvalfjarðargöngin verða opin fram á sunnudagskvöld en þá verður þeim lokað frá klukkan 21:30 til 06:00 – líkt og gert hefur verið undanfarnar vikur vegna framkvæmda. Hvalfjarðargöng um hvítasunnuhelgina: Framkvæmdir hafa staðið yfir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til frá 7. apríl sl. Unnið er að endurnýjun á öllum lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Áætlum um hvítasunnuhelgina: Opið: Frá kl. 06:00 föstudaginn 22. maí til kl. 21:30 sunnudagskvöldið 24. maí. Frá kl. 06:00 mánudaginn 25. maí til kl. 21:30 að mánudagskvöldi. Lokað: Frá kl. 21:30 sunnudagskvöldið 24. maí til kl. 6:00 að mánudagsmorgni, 25. maí. Frá kl. 21:30 mánudagskvöldið 25. maí til kl. 6:00 að þriðjudagsmorgni, 26. maí. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, biður vegfarendur um að sýna aðgát og þolinmæði á vegum. Hann er bjartsýnn á að framkvæmdunum ljúki á tilætluðum tíma. „Í Hvalfjarðargöngunum gengur þetta bara mjög vel og er allt á áætlun. Við miðum við að klára 29. maí og það lítur út fyrir að það standi,“ segir G. Pétur. „Það má líka benda á að í fyrramálið er verið að fræsa hvinrendur í nýja malbikið hjá Hólmsá. Það á ekki að valda miklum töfum en þar þurfa menn líka að sýna aðeins þolinmæði.“ Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir einhverja umferð þegar hafa myndast á vegum. Hann bendir ökumönnum á að hafa augun opin fyrir umferð bæði mótorhjóla og reiðhjóla á vegum um helgina. Þá sé brýnt að ökumenn bíla virði viðmið um að einn og hálfur metri sé á milli ökutækja og hjóla.

Share this article