Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.5.2026 | 10:43 „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, telur vilja kjósenda blasa við. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hildur fundar í kvöld og á morgun „Það var ekkert handsalað þegar við fórum“ Óvíst að Guðmundur hefði nýtt sér stöðuna betur Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, mun eiga fund með Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, eftir hádegi í dag vegna þreifinga um nýjan meirihluta í borginni. Þetta staðfestir Ari í samtali við mbl.is, en samkvæmt heimildum munu allir fundirnir með oddvitunum fara fram eftir hádegi. Allar líkur eru á því að það skýrist um helgina hvaða flokkar muni hefja meirihlutaviðræður. Hildur fundaði með nýjum borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í gær þar sem farið var yfir stöðuna og næstu skref rædd. Þá hitti hún oddvita Miðflokksins, Framsóknar og Viðreisnar í hádegismat á miðvikudag. Frétt af mbl.is Hildur fundar í kvöld og á morgun Áttu gott spjall á miðvikudag Ari segir oddvitana fjóra hafa átt gott spjall í hádegismatnum í Hannesarholti á miðvikudaginn, en spurður hvaða tilfinningu hann hafi fyrir framhaldinu, hvort hann telji að Miðflokkurinn sé á leið í meirihlutasamstarf, segist hann ekki geta fullyrt um það. „Ég hef gefið almenna skoðun á því. Mér finnst blasa við að það sé eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga, en það kemur svo bara í ljós hvernig það spilast.“ Talið hefur verið líklegast að Hildur muni fara annað hvort þá leið að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn. Einnig hefur verið talað um þriggja flokka meirihluta með Miðflokki og Framsókn sem valkost. Frétt af mbl.is Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Oddvitarnir snæddu saman hádegisverð á miðvikudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hafi saman hreinan meirihluta Ari vill ekki úttala sig um það hvort honum gæti hugnast að vera í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn. „Ég bara segi það að niðurstaða kosninganna er að þessir tveir flokkar, M og D, hafa hreinan meirihluta,“ segir Ari og vísar þar til Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, en saman geta þessir flokkar myndað minnsta mögulega meirihluta í borginni, sem telur 12 manns. Hefurðu góða tilfinningu fyrir því að það verði niðurstaðan? „Ég held að það sé bara best að leyfa því bara að koma í ljós. Nei, af því að líka hlýtur niðurstaðan að byggja á tilfinningum og skoðunum fleiri aðila, þannig að þetta bara kemur í ljós.“ Frétt af mbl.is „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Skýrist fljótlega Ég er aðallega að hugsa um hver þín tilfinning er, hvernig þér hefur liðið í þessum samtölum? „Nei, það byggir ekki bara á samtölunum, það byggir bara á niðurstöðunni sem liggur fyrir. Í ljósi reynslu undanfarinna ára og kjörtímabila þá væri það alls ekki skynsamlegt að fara á svig við vilja kjósenda og ég hef enga ástæðu til að ætla að svo verði. Það er það sem mér finnst blasa við.“ Ari segist hafa það sterklega á tilfinningunni að það hljóti að skýrast fljótlega hvaða flokkar hefji meirihlutaviðræður, en samkvæmt heimildum mbl.is ætti það að skýrast um helgina, líkt og áður sagði. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hildur fundar í kvöld og á morgun „Það var ekkert handsalað þegar við fórum“ Óvíst að Guðmundur hefði nýtt sér stöðuna betur Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hann er svo mikið „monster“ Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Ákvarðanir um herlið í Evrópu ekki refsiaðgerðir“ United með stóra tilkynningu Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Helgin blaut: „Þetta er í raun síðasti dagurinn“ Markleysið enn einn áfellisdómur Námsgögn fjársvelt í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Hann er svo mikið „monster“ Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Ákvarðanir um herlið í Evrópu ekki refsiaðgerðir“ United með stóra tilkynningu Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markleysið enn einn áfellisdómur Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Hildur fundar í kvöld og á morgun Gagnrýna hvata örorkukerfisins Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article