Innlent | mbl | 21.5.2026 | 22:37 „Ég rauk á fætur“ Jórunn ásamt föður sínum, Hans W. Rothenborg lækni, á heimili hans í Hellerup. Faðir hennar fæddist í þessu húsi fyrir 99 árum. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta var nú ekki svo mikill skellur, húsið skemmdist alla vega ekki neitt, gamalt múrsteinshús í Hellerup sem pabbi minn fæddist í fyrir 99 árum,“ segir Jórunn Rothenborg leiðsögumaður í samtali við mbl.is, einn margra Íslendinga sem fundu fyrir 3,9 stiga jarðskjálfta sem átti upptök sín undir botni Køge-flóans sunnan Kaupmannahafnar í gær. Frétt af mbl.is Stór jarðskjálfti fannst í Kaupmannahöfn Faðirinn, Hans W. Rothenborg, er húðlæknir og starfaði við sérgrein sína alla tíð í atvinnulífinu, 99 ára gamall man hann tímana tvenna en þrátt fyrir að vera Dani er skjálftinn í gær reyndar ekki eini jarðskjálftinn sem hann hefur upplifað um ævina enda fá Danir annað slagið að finna fyrir jarðskjálftum, síðast árið 2012 þegar 4,4 stiga skjálfti undir Kattegat fannst víða um landið. Jórunn starfar sem leiðsögumaður á Íslandi en er fædd og uppalin í Danmörku. Ljósmynd/Aðsend Lætin og drunurnar rosaleg „Ég sat við skrifborðið mitt hér og var að vinna, ég er í fjarvinnu að heiman,“ segir Jórunn, „og þar sem ég er leiðsögumaður fór ég beint inn á jarðskjálfta-appið mitt. Þetta voru fjórir skjálftar í röð sá ég. Vinkona mín í Østerbro í Kaupmannahöfn fann ekki neitt, ég talaði við hana á Messenger skömmu eftir að skjálftinn varð,“ heldur hún áfram. Frétt af mbl.is „Mjög margir hringdu í 112“ „Lætin og drunurnar voru rosaleg, gólfið hristist og allt hringlaði í glerskáp fyrir aftan mig eins og gerist í jarðskjálftum á Íslandi. Ég rauk á fætur og leit út um gluggann, sá svo sem ekkert sérstakt, en pabbi var í sófanum á neðri hæðinni, beint fyrir neðan mig, og fann þetta vel. Daniel sonur minn, sem var nýkominn frá London hingað með flugi eldsnemma í gærmorgun og var sofandi, vaknaði við drunurnar og vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið,“ segir Jórunn frá. „Ég rauk á fætur og leit út um gluggann, sá svo sem ekkert sérstakt, en pabbi var í sófanum á neðri hæðinni, beint fyrir neðan mig, og fann þetta vel,“ segir Jórunn frá. Ljósmynd/Aðsend „Þannig að þetta var alvöruskellur. Ég var með gesti í mat eftir þetta, þar voru hjón sem búa í Vanløse og hún fann ekki neitt en hann sá trén fyrir utan húsið hjá þeim sveigjast til. Ég veit núna að sprungur komu í hús hjá einhverjum, reyndar ekki hérna, en pabba leist ekki á blikuna varðandi það og fór að grandskoða húsið upp á hvort eitthvert tjón hefði orðið,“ segir Jórunn Rothenborg að lokum, þriðji Íslendingurinn sem mbl.is ræðir við eftir skjálftann í Danmörku í gær sem margir í stóru Íslendingasamfélagi þar í landi fundu vel fyrir. Aðrir fundu ekki neitt enda ekki um mikinn skjálfta að ræða á íslenskan mælikvarða. Frétt af mbl.is Sá mann baða út öllum öngum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögreglumenn handteknir fyrir árás á vændiskonu Aukin útbreiðsla ebólu í Afríku „Ég rauk á fætur“ Þarf að búa til framtíðar stuðningsmenn Dæmd fyrir að eðla sig í göngum Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu Mestu sérhagsmunir í sögunni Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » Lögreglumenn handteknir fyrir árás á vændiskonu Aukin útbreiðsla ebólu í Afríku „Ég rauk á fætur“ Þarf að búa til framtíðar stuðningsmenn Dæmd fyrir að eðla sig í göngum Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gagnrýna hvata örorkukerfisins Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð