Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Slíta meiri­hluta­viðræðum í Hafnarfirði vegna trúnaðarbrests

Read Full Article →

Sjálf­stæðis­flokkurinn í Hafnarfirði hefur slitið viðræðum við Framsóknar­flokkinn um áfram­haldandi meiri­hluta­sam­starf í bænum. Flokkurinn segir al­var­legan trúnaðar­brest liggja þar að baki. Þetta kemur fram í til­kynningu frá bæjar­full­trúum Sjálf­stæðis­flokksins í Hafnarfirði í dag. Sam­kvæmt til­kynningunni höfðu flokkarnir hand­salað sam­komu­lag um að hefja viðræður um áfram­haldandi meiri­hluta­sam­starf eftir sveitar­stjórnar­kosningarnar. Síðar hafi hins vegar komið í ljós að Framsóknar­flokkurinn hefði einnig hand­salað sam­bæri­legt sam­komu­lag við aðra flokka í bænum. „Það er því ljóst að grund­völlur meiri­hluta­sam­starfs flokkanna er ekki lengur fyrir hendi,“ segir í til­kynningunni. Sjálf­stæðis­flokkurinn segir jafn­framt að mikilvægt sé að vanda til verka við myndun nýs meiri­hluta í bænum, enda séu aðstæður flóknar. Þá segir flokkurinn að ábyrgð bæjar­full­trúa sé að mynda starf­hæfan meiri­hluta sem tryggi traustan rekstur og áfram­haldandi upp­byggingu í Hafnarfirði. „Sjálf­stæðis­flokkurinn mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum,“ segir í til­kynningunni. „Það er ljóst að það verður flókið að mynda meirihluta í bænum við þær aðstæður sem upp eru komnar og mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa í Hafnarfirði að vanda til verka. Sú ábyrgð hvílir á bæjarfulltrúum að mynda starfhæfan meirihluta í bænum þar sem meginmálefnin eru að tryggja traustan rekstur og áframhaldandi uppbyggingu í Hafnarfirði. Að Hafnarfjörður verði áfram í fremstu röð og besti bærinn til að búa í. Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki láta sitt eftir liggja í þessum efnum,“ segir í til­kynningunni.

Share this article