Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Heitavatnslaust í hluta Kópavogs Þorgils Jónsson Vegna bilunar er heitavatnslaust í hluta Kópavogs. Frá þessu segir á vef Veitna. Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Tvær vilja stýra FS Brynjólfur Þór Guðmundsson Guðlaug Málfríður Pálsdóttir aðstoðarskólameistari og Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir sviðsstjóri vilja verða næsti skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þrjár umsóknir bárust um embættið en einn umsækjandi dró sig til baka. Embætti skólameistara er laust eftir að Kristján Ásmundsson ákvað að hætta vegna óánægju með húsnæðismál skólans. Hann sagði stjórnvöld hafa sýnt áhugaleysi þegar kæmi að því að bæta húsakost. Fjölbrautaskóli Suðurnesja. RÚV / Þorgils Jónsson Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Finnur Yngvi hættir sem sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit Siguróli Magni Sigurðsson Finnur Yngvi Kristinsson hættir sem sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar eftir 8 ár í starfi. Finnur Yngvi hefur verið ráðinn og ópólitískur sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit frá því í september 2018. Í samtali við fréttastofu sagði Finnur að hann hefði tilkynnt sveitarstjórninni um ákvörðun sína í janúar og að ástæðan væri sú að það væri góður tími til þess að breyta til og að hann og fjölskylda hans væru að flytjast búferlum suður yfir heiðar. Nýtt starf sveitarstjóra var auglýst í morgun á vef Eyjafjarðarsveitar með umsóknarfresti til 1. júní. Finnur Yngvi er sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Minni hagvöxtur og hærri verðbólga vegna átakanna í Mið-Austurlöndum Efnahagsspá Evrópusambandsins sem birt var í morgun gerir ráð fyrir minni hagvexti á þessu ári vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Búist er við að verðbólga verði um 3.1 á þessu ári, prósentustigi meira en áður hafði verið spáð. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Saga Nokkur hundruð ár gætu liðið áður en Geysir birtist á ný Flak flugvélarinnar Geysis á eftir að færast til um tugi kílómetra áður en það birtist aftur. Flugvélin fórst á Vatnajökli 1950. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands Forsetinn ferðast um Suðurland Brynjólfur Þór Guðmundsson Halla Tómasdóttir forseti ferðast um Suðurland ásamt Birni Skúlasyni, manni sínum, í dag. Forsetahjónin heimsækja leikskólann á Laugalandi en 30 ára afmæli hans er tilefni ferðarinnar. Þau hyggjast einnig heimsækja Laugalandsskóla, hjúkrunarheimilið Lund og Hellana á Hellu. Ferðinni lýkur svo í Hellisheiðarvirkjun þar sem 80 ára borsögu Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða verður minnst. Halla Tómasdóttir forseti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Fjallabyggð Flakkað um Ólafsfjörð: Sauðburður, sprunginn leikskóli, sjoppan og lífið við höfnina Ólafsfjörður er annar tveggja þéttbýliskjarna í Fjallabyggð á norðanverðum Tröllaskaga. Í bænum býr 771. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Stýrivaxtahækkun vonbrigði og stéttarfélög í startholunum Formaður Starfsgreinasambandsins segir stýrivaxtahækkun Seðlabankans mikil vonbrigði. Stéttarfélögin muni bregðast við, bresti forsendur kjarasamninga í ágúst. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Kviknaði í vélarrúmi trillu Brynjólfur Þór Guðmundsson Áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar kom skipstjóra á trillu til bjargar eftir að eldur kviknaði í vélarrúmi bátsins. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð um klukkan fjögur í nótt. Þá var hann búinn að slökka eldinn en vélin var eðli málsins samkvæmt ónothæf. Húnabjörg var því boðuð út á næst hæsta forgangi. Hún lagði úr höfn á Skagaströnd rétt upp úr hálf fimm og var komin að bátnum upp úr klukkan fimm. Taug var komið í bátinn og hann tekinn í tog. Húnabjörgin og trillan komu í höfn um klukkan sex í morgun. Húnabjörg með trilluna í togi. Slysavarnafélagið Landsbjörg Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Afhjúpuðu málverk af Unni Brá Málverk af Unni Brá Konráðsdóttur var afhjúpað á Alþingi í gær. Hefð er fyrir því að máluð séu portrett af fyrrverandi forsetum þingsins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fullt út úr dyrum á Vísinda- og fræðsludegi HSN Vísinda- og fræðsludagur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands fór fram í Hofi á Akureyri í gær. Fullt var út úr dyrum. Þetta var í fyrsta skipti sem slíkur viðburður er haldinn á vegum HSN. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Fleiri seljendur lækka verð á íbúðum Íbúðaverð stóð í stað í apríl og er líklega óbreytt í maí, samkvæmt nýrri skýrslu HMS. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjart og hlýtt sunnan til en rakara fyrir norðan Útlit er fyrir allt að 15 stiga hita í dag á sunnanverðu landinu en öllu svalara verður norðaustan til. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Bandaríkjastjórn ákærir Raúl Castro fyrir morð Fyrrum forseti Kúbu hefur verið ákærður fyrir morð, samsæri um að myrða Bandaríkjamenn og eyðileggingu flugvéla. Ákærurnar hafa ýtt undir vangaveltur um að Bandaríkjaforseti ætli sér að reyna að steypa kommúnistastjórn Kúbu af stóli. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Austurríki Yfirvöld hefja rannsókn á meintum leyniskyttum í Sarajevo Lögregluyfirvöld hafa hafið rannsókn á tveimur einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa greitt háar fjárhæðir fyrir að skjóta fólk í svokölluðum leyniskyttuveiðiferðum í Sarajevó. Ítölsk yfirvöld eru einnig að rannsaka þátt Ítala í ferðunum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelsstjórn harðlega gagnrýnd vegna illrar meðferðar á aðgerðarsinnum Stjórnvöld víða um heim hafa fordæmt meðferð Ísraelshers á 430 aðgerðarsinnum sem eru í haldi. Fólkið var um borð í skipum á leið með matvæli og hjálpargögn á Gaza þegar ísraelski herinn stöðvaði ferð þeirra og handtók fólkið. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ekki lengur undir þvingunaraðgerðum Bandaríkjastjórnar Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur fjarlægt sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu af lista yfir einstaklinga sem eru undir þvingunaraðgerðum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher fór um borð í íranskt olíutankskip Brynja Dögg Friðriksdóttir Skipið var á Ómanflóa þegar bandarískir sjóliðar fóru um borð. RÚV / Sigurður Kristján Þórisson Bandaríkjaher fór um borð í olíutankskip á Ómanflóa í gær. Skipið siglir undir írönskum fána. Í tilkynningu sem Aðgerðarstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) birti á samfélagsmiðlinum X, kemur fram að áhöfn skipsins sé grunuð um að hafa ætlað að brjóta herkví Bandaríkjanna á írönskum höfnum. Bandarískir sjóliðar gerðu leit um borð og skipuðu áhöfn þess að breyta stefnu skipsins, samkvæmt færslu bandaríska hersins. Bandaríkjaher hefur skipað 91 skipi að breyta siglingaleið sinni svo herkví Bandaríkjamanna sé virt. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Fengu þrjú útköll á þremur tímum Brynja Dögg Friðriksdóttir Dælubíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Eldur kviknaði í ruslatunnu við Vífilstaðartún í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk útkall um klukkan 21:30 og sendi dælubíl á vettvang. Ruslatunnan stóð nærri skýli, en eldurinn hafði þó ekki náð að læsa sig í klæðninguna, samkvæmt varðstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Skömmu seinna barst tilkynning um lítinn sinubruna á göngustíg norðanmegin við Þróttaraheimilið. Einn dælubíll var sendur á vettvang og slökkviliðsmenn náðu fljótt að slökkva sinubrunann. Þá óskaði eigandi bifreiðar í Þönglabakka eftir aðstoð slökkviliðs vegna olíu sem lak frá bíl hans. Dælubíll var sendur á vettvang til að hreinsa upp olíuna. 21. maí 2026 kl. 0:08INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Lítil trú á að verðbólga náist niður ástæða þess að það gangi illa Aðalhagfræðingur Landsbankans telur hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum nauðsynlega og til þess fallna að hafa áhrif á verðbólguvæntingar sem búi til verðbólgu. Dósent í viðskiptafræði við HÍ telur hækkunina ekki skila neinu. 20. maí 2026 kl. 22:47INNLENDAR FRÉTTIR Hönnun Röktu sögu íslenskrar fatahönnunar 2000-2015 Saga íslenskrar fatahönnunar á árunum 2000-2015 var rifjuð upp á sýningu Fatahönnunarfélags Íslands í Hvelfingunni í Norræna húsinu á Hönnunarmars. Siggi Gunnars kynnti sér málið. 20. maí 2026 kl. 21:53ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Bóluefni gegn ebólu gæti tekið níu mánuði í þróun Bóluefni gegn ebólu-faraldrinum sem nú geisar í Afríku gæti tekið allt að níu mánuði í þróun. Hvorki bóluefni né lyf eru til gegn afbrigðinu sem flestir eru smitaðir af. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun hefur lýst yfir neyðarástandi. 20. maí 2026 kl. 21:39ÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsta tap eyjakvenna og Blikar einir á toppnum ÍBV tapaði í kvöld sínum fyrstu stigum í sumar í Bestu deild kvenna í fótbolta þegar FH vann eyjakonur 3-0. Breiðablik er því eitt á toppi deildarinnar eftir 3-1 útisigur á Þór/KA. 20. maí 2026 kl. 21:18ÍÞRÓTTIR Fótbolti Enn einn Evrópudeildartitill Emery Aston Villa fagnaði í kvöld sigri í Evrópudeild karla í fótbolta eftir sigur á þýska liðinu Freiburg, 3-0. Unai Emery knattspyrnustjóri Aston Villa vann þar með Evrópudeildina í fimmta sinn sem stjóri, sem er einstakt afrek. 20. maí 2026 kl. 21:07INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Nutu veðurblíðunnar og fengu „sixpakkið poppandi“ Veðrið hefur leikið við íbúa á suðvesturhorni landsins í dag og það er ljóst að margir hafa beðið spenntir eftir því að komast út að leika í sumarblíðu. 20. maí 2026 kl. 20:03INNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ í höfn Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa náð samkomulagi um að mynda nýjan meirihluta í Reykjanesbæ. Flokkarnir hófu viðræður á sunnudaginn og hafa nú náð samkomulagi um öll helstu atriði. 20. maí 2026 kl. 19:50INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Eigandi lúxussnekkjunnar stefnir ríki