Icelandair og Sjóvá hafa hafið samstarf sem gerir viðskiptavinum í Stofni hjá Sjóvá kleift að safna vildarpunktum Icelandair. Viðskiptavinir Sjóvá geta nú valið að fá stofnendurgreiðslu sína í formi vildarpunkta Icelandair ásamt því að fá einnig aðgang að vildartilboðum sem opna möguleikann á hagstæðari ferðalögum. Tjónlausir viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá geta fengið endurgreiðslu einu sinni á ári og ef þeir eru jafnframt félagar í Icelandair Saga Club er hægt að fá endurgreiðsluna í formi vildarpunkta sem nýtast til ferðalaga og annarra fríðinda hjá Icelandair. „Icelandair Saga Club er stærsti vildarklúbbur landsins og markmið okkar er að gera hann að hluta af hversdeginum. Þegar viðskiptavinir Sjóvár velja að fá endurgreiðsluna sína í formi vildarpunkta breytist ár án tjóns í tækifæri til að upplifa heiminn. Þetta er nákvæmlega sú tegund samstarfs sem við leitumst eftir og fögnum því að hefja samstarf við eins virtan samstarfsaðila og Sjóvá,“ segir Tómas Ingason , framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Þegar vildarpunktar Icelandair eru valdir sem stofnendurgreiðsla Sjóvá skrá viðskiptavinir sig inn í Sjóvá appið eða á Mitt Sjóvá og velja að fá endurgreiðsluna í formi vildarpunkta Icelandair. Þegar viðskiptavinir í Stofni velja að fá endurgreiðslu í formi vildarpunkta eru punktarnir skráðir um leið á Saga Club reikninginn hjá Icelandair. „Við leitum stöðugt leiða til að skapa viðskiptavinum okkar meira virði. Með samstarfinu við Icelandair geta viðskiptavinir í Stofni nýtt endurgreiðsluna sína á nýjan og spennandi hátt sem tengist upplifunum og ferðalögum,“ segir Svali Björgvinsson , framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Sjóvá.