Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.5.2026 | 7:00 Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Samsett mynd Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Landspítali er án efa ein mikilvægasta stofnun landsins. Í Vatnsmýrinni rís glæsileg bygging sem mun hýsa starfsemina í komandi framtíð. En húsnæði er ekki nóg til að tryggja framtíð þeirrar öflugu starfsemi sem við viljum sjá innan Landspítalans. Stjórn Landspítala hefur starfað í tæp fjögur ár og lýkur nú í júlí sínu öðru skipunartímabili. Á þeim tíma hafa tvö umfjöllunarefni verið efst á baugi: fjármögnun spítalans og hlutastörf starfsmanna spítalans og áhrif þeirra á starfsemina. Um 55% sérfræðilækna á Landspítala eru í hlutastarfi og reka flestir þeirra samhliða starfi sínu á spítalanum eigin læknastofu. Er þetta hlutfall mun hærra en á þeim háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndunum sem við berum okkur saman við. Margt getur verið jákvætt við þá þjónustu sem sérfræðilæknar veita á eigin stofum en óneitanlega hafa þeir hagsmunir sem hvíla í stofurekstrinum áhrif á störf innan spítalans. Nýverið ritaði forstjóri spítalans grein í fréttabréf spítalans, Spítalapúlsinn, þar sem hann reifar á greinargóðan hátt þau áhrif sem þessi störf hafa á rekstur þjóðarsjúkrahússins. Að mati stjórnar spítalans kallar sú staða sem lýst er í greininni á viðbrögð stjórnvalda til að tryggja skynsamlegra jafnvægi innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu þar sem aukin áhersla verði lögð á opinberar heilbrigðisstofnanir og stýringu innan þeirrar þjónustu sem hið opinbera veitir. Endurskoða þarf kerfislæga hvata Landspítali er rekinn með fjárframlögum ríkisins og hafa stjórnvöld stefnt að breytingum á fjármögnunarfyrirkomulagi spítalans allt frá því lög um sjúkratryggingar voru samþykkt árið 2008. Stefnt hefur verið að svokallaðri þjónustutengdri fjármögnun þar sem greitt er fyrir unnin verk. Þetta greiðslufyrirkomulag þekkist víða erlendis og er talið ýta undir jákvæða hvata til aukinnar framleiðni. Árið 2021 var undirritaður samningur Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala um þjónustutengda fjármögnun og náði sá samningur til um 56% allrar þjónustu spítalans. Sá hængur var hins vegar á samningnum að hann náði eingöngu til þeirra fjárframlaga sem Alþingi samþykkir að úthluta til spítalans. Þetta þýðir að spítalinn fær greitt fyrir unnin verk þar til fjárveitingar þrjóta og engar greiðslur fást fyrir þau verk sem unnin eru í kjölfarið. Þetta fyrirkomulag er því lítil breyting frá því sem áður var þegar fjármögnun var að öllu leyti föst fjárveiting samkvæmt fjárlögum. Enn fremur er Landspítali sú stofnun sem tekur við alvarlegustu og sérhæfðustu viðfangsefnunum vegna sinnar sérþekkingar og getur því ekki vísað sjúklingum annað þegar fjárveitingar þrjóta. Á síðustu árum hefur spítalinn orðið af miklum fjármunum fyrir þau verk sem sannarlega voru unnin vegna þessa fyrirkomulags og líður stofnunin án efa fyrir það á mörgum sviðum, sérstaklega þegar litið er til uppbyggingar vísindastarfs og menntunarhlutverks. Það er jú þannig að klíníska starfsemin gengur ætíð fyrir en háskólasjúkrahúsum ber einnig að sinna öflugu kennslu- og vísindastarfi til að viðhalda þekkingu og færni bæði innan stofnunarinnar en einnig samfélagsins. Stefna stjórnvalda ýtir undir hagsmunaárekstra Fjölbreyttar fjármögnunaraðferðir er að finna í íslenskri heilbrigðisþjónustu og er eina útfærslu fjármögnunar að finna í samningum Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna. Um rammasamning er að ræða sem á sér nokkuð langa sögu. Enginn vafi er á því að framlag sérgreinalækna á eigin lækningastofum hefur verið mikið á síðustu áratugum. Það skýtur þó skökku við að fjármögnunaraðgerðir séu svo frábrugðnar innan sama kerfisins þar sem greiðandinn er sá sami, því umfang veittrar þjónustu hefur engin áhrif á greiðslur innan rammasamnings sérgreinalækna. Þeir fá greitt óháð magni og raunar þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á um það í lögum að semja skuli um tiltekið magn. Hér blasir því óneitanlega við skökk mynd sem ætla má að ýti nokkuð undir hagsmunaárekstra og fjárhagslega hvata fyrir sérfræðilækna til að draga úr framlagi sínu til opinberra stofnana og einbeita sér frekar að rekstri eigin stofu. Telur stjórnin þessa stöðu áhyggjuefni sem stjórnvöld verði að bregðast við. Landspítali stefnir markvisst að fjölgun lækna í háu starfshlutfalli Í tengslum við þær hagræðingaraðgerðir sem spítalinn tekst nú á við hefur verið lögð áhersla á að vinna markvisst að því að fjölga læknum sem starfa á spítalanum í 80-100% starfshlutfalli og á sama tíma draga úr fjölda þeirra sem eru í mjög lágu starfshlutfalli. Er þessi stefna mörkuð alfarið með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Þetta háa hlutfall lækna í skertu starfshlutfalli skapar mikinn stjórnunarvanda, hærri kostnað, lakari þjónustu og vandasamt er að tryggja öryggi skjólstæðinga spítalans, enda samfella í þjónustu forsenda gæða og öryggis. Þá er einnig hætta á að það komi niður á lögbundnu háskólahlutverki spítalans, vísindastarfi, kennslu læknanema og þjálfun lækna í sérfræðinámi. Vill stjórn Landspítala undirstrika stuðning sinn við þessa stefnu yfirstjórnar spítalans og hvetja stjórnvöld til að beita sér fyrir auknu samræmi í fjármögnun innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að draga úr hagsmunaárekstrum milli opinberrar þjónustu og einkarekinnar. Sveinn Magnússon, Sólrún Kristjánsdóttir, Gunnar Einarsson, Höskuldur H. Ólafsson og Ingileif Jónsdóttir skipa stjórn Landspítalans. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir meðferð Ísraela á aðgerðasinnunum Sektað fyrir að fara ekki að barnaverndarlögum Aðsend grein: Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Aðsend grein: Takk fyrir traustið 62 ára óþekkjanleg með ljóst hár Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Nýr meirihluti á Akureyri Við viljum finna skjól og öryggi Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Hvati til að draga úr framlagi sínu Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir meðferð Ísraela á aðgerðasinnunum Sektað fyrir að fara ekki að barnaverndarlögum Aðsend grein: Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Aðsend grein: Takk fyrir traustið 62 ára óþekkjanleg með ljóst hár Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvati til að draga úr framlagi sínu Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Hvati til að draga úr framlagi sínu Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article