Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hafna kvörtunum vegna ÁTVR

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.5.2026 | 6:12 Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Í kvörtun til ESA voru gerðar athugasemdir varðandi smásölu áfengra drykkja hjá ÁTVR. mbl.is/Eggert Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur svarað bréfi frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þar sem íslensk stjórnvöld voru krafin svara um fyrirkomulag áfengissölu hér á landi. Í svarinu er öllum helstu umkvörtunum hafnað, meðal annars að svokallað brugghúsafrumvarp hafi ekki leitt til mismununar né hafi það brotið gegn einkarétti ÁTVR. Eins er því hafnað að útboð á áfengissölu í Leifsstöð hafi áhrif á einkaréttinn, enda sé sölusvæðið „landfræðilega aðskilið frá innlendum smásölumarkaði“. Greint var frá því seinnipartinn í mars að í bréfinu hefði komið fram að stofnuninni hefði borist kvörtun varðandi smásölu áfengra drykkja hjá ÁTVR. Var íslenskum stjórnvöldum gert að svara sjö meginspurningum, meðal annars um svokallað brugghúsafrumvarp sem kvartandi vildi meina að fæli í sér undantekningu frá einkarétti ÁTVR. Hið sama vildi kvartandi meina að gilti um smásölu áfengra drykkja í flugstöðinni í Keflavík. Það að hún hafi verið boðin út og sé nú rekin af einkaaðila feli einnig í sér undantekningu frá einkarétti ÁTVR. Svöruðu degi of seint Svör áttu að berast fyrir 20. apríl síðastliðinn en svarbréf fjármála- og efnahagsráðuneytisins er dagsett 21. apríl. Ef þau teljast ekki fullnægja kröfum ESA getur stofnunin hafið brotamál fyrir EFTA-dómstólnum. Í svarinu segir að áhrif þess að heimila sölu á framleiðslustað á einkarétt ÁTVR, auk samræmis við EES-samninginn, hafi verið sérstaklega metin í lagasetningarferlinu. „Niðurstaða matsins var sú að aðgerðin myndi ekki leiða til mismununar eða grafa undan kröfum 16. gr. EES-samningsins. Í áhrifamatinu kom enn fremur fram að breytingin myndi ekki hafa marktæk samfélagsleg áhrif og myndi ekki leiða til aukinnar áfengisneyslu. Undanþágan er því uppbyggð sem þröng og hófleg fráviksheimild sem hefur ekki áhrif á uppbyggingu eða starfsemi einkasölunnar,“ segir í svarinu. Eftir að sala áfengis og fleiri vara í fríhöfninni í Leifsstöð hófst hafa vaknað spurningar um lögmæti þess fyrirkomulags. Í svari ráðuneytisins segir þó að áhrif fríhafnarsölu á ríkiseinkasöluna og samræmi hennar við 16. gr. EES-samningsins hafi verið metin. Þau endurspeglist í lagaramma sem gildi um slíka sölu, skilyrðum sem fylgja rekstri hennar og uppbyggingu núverandi útboðsfyrirkomulags. Vísað er til tollalaga þar sem segir að fríhafnarsala sé stranglega takmörkuð við farþega í millilandaflugi. „Aðgangur að slíkri sölu er háður sönnun um ferðalag og sölusvæðið er landfræðilega aðskilið frá innlendum smásölumarkaði,“ segir í svarinu. „Fríhafnarsala er stafrænt og lagalega aðgreind frá innlendri smásölu,“ segir þar enn fremur. Fríhafnarsala áfengis Gamalgróið Ráðuneytið segir að fyrirkomulag fríhafnarsölu áfengis sé gamalgróið og endurspegli fyrirkomulag í nágrannalöndunum. Þar hafi rekstur fríhafnarverslana verið falinn einkaaðilum á grundvelli opinberra útboða. „Þetta fyrirkomulag hefur ekki verið litið á sem hluta af ríkiseinkasölunni sjálfri, heldur sem sérstakt og stranglega afmarkað kerfi sem tengist millilandafarþegaflutningum. Sem slíkt hefur það verið talið samrýmast uppbyggingu ríkiseinkasölu samkvæmt EES-rammanum og felur ekki í sér almenna frjálsræðisvæðingu smásölu utan einkasölunnar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gaman að geta boðið upp á eitthvað nýtt Með piparúða í fórum sínum Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Víða sést til sólar og hiti að 15 stigum Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: Gagnlegt samtal „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Nauðsynlegt að samræma störf slökkviliða Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Brýnt að nýjar sveitarstjórnir taki á málaflokknum Klemmdist undir rútu Blóðugur reikningur á Tenerife Mest líkindi með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Gaman að geta boðið upp á eitthvað nýtt Með piparúða í fórum sínum Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Víða sést til sólar og hiti að 15 stigum Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Takk fyrir traustið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: Gagnlegt samtal 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Mjög margir hringdu í 112“ Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Ráðuneytið birtir upplýsingar um frammistöðu nemenda Brýnt að nýjar sveitarstjórnir taki á málaflokknum Klemmdist undir rútu Blóðugur reikningur á Tenerife Mest líkindi með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article