Þróun nýskráninga það sem af er ári virðist að stórum hluta tengjast auknum innflutningi bifreiða undir lok árs 2025 í aðdraganda breytinga á vörugjöldum. Rafbílar eru áfram stærsti flokkur nýskráninga. Tengiltvinnbílar og tvinnbílar koma þar á eftir en nýskráning bensín- og dísilbíla heldur áfram að dragast saman. Þessi þróun kemur ekki á óvart og raunar endurspeglar áframhaldandi orkuskipti í bílaflota landsins þar sem bílum með vistvæna orkugjafa fjölgar umtalsvert. Bílaleigur fyrirferðarmiklar á markaðnum Bílaleigur eru fyrirferðarmiklar á markaðnum það sem af er árinu. Þær hafa nýskráð alls 2.611 nýja fólksbíla, sem er 48% aukning samanborið við sama tímabili í fyrra. Nýskráningar hjá bílaleigum hófust fyrr en vanalega og því á eftir að koma í ljós hvernig þróunin verður í nýskráningum hjá þeim þegar líður á árið. Tvinnbílar eru algengastir í nýskráningum hjá bílaleigum og þar á eftir tengiltvinnbílar með samanlagt nálægt 80% hlutdeild það sem af er ári. Það er eðli málsins samkvæmt enda treysta ferðamenn síður á rafbíla þegar ferðast er um landið. Nýskráningar á bílum til einstaklinga hafa dregist saman milli ára og kemur það ekki endilega á óvart miðað að margir keyptu nýja bíla undir lok síðasta árs áður en verðhækkanir urðu vegna breytinga á vörugjöldum. Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .