Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.5.2026 | 16:33 Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á þinginu í dag. mbl.is/Hákon Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Afhjúpa málverk af Unni Brá Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu » Fleiri tengdar fréttir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir heilt ár hafa tapast í baráttunni við verðbólgu og stýrivexti. Stýrivextir voru í dag hækkaðir í 7,75% en á sama tíma í fyrra voru þeir lækkaðir niður í 7,5%. Beindi formaður Sjálfstæðisflokksins spjótum sínum að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, þar sem hún spurði hvort hún sæi ekki að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefði brugðist stórkostlega. „Hvað þarf eiginlega að gerast til þess að ríkisstjórnin hverfi frá braut skattahækkana, aukinna ríkisumsvifa og innantómra fyrirheita?“ spurði Guðrún. Innri þættir hafi lækkað Svaraði Kristrún fyrir sig með því að benda á að stýrivextir væru enn lægri en þeir voru er fyrri ríkisstjórn lét af störfum. „Hún nefnir ekki það sem allir vita að við höfum fengið umtalsverðar olíuverðshækkanir í fangið núna á undanförnum mánuðum. Þetta eru ytri áhrifin sem blasa við á meðan innri þættir, eins og til dæmis húsnæðisliðurinn, hefur lækkað,“ sagði Kristrún, sem viðurkenndi þó að hún væri ekki par sátt við stöðuna. Benti Kristrún á að í fjármálaáætlun væri lagt upp með hallalaus fjárlög fyrir árið 2027, sem fyrri ríkisstjórn hefði ekki tekist að skila af sér. Auk þess væri þríhliða samtal hafið við aðila vinnumarkaðarins til að leita lausna til að hemja verðbólguna. Frétt af mbl.is „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Guðrún og Kristrún tókust á. Hér má sjá þær á þingfundi dagsins. mbl.is/Hákon „Gamalkunnugt stef“ Mætti Guðrún að loknu svari forsætisráðherra upp í ræðustól að nýju og virtist alls ekki sátt við þau svör sem hún fékk. „Þetta er allt gamalkunnugt stef. Hér mætir forsætisráðherra og skellir skuldinni á alla aðra en ríkisstjórnina sjálfa. Þetta er forsætisráðherra ekki sæmandi,“ sagði Guðrún. Telur Guðrún það skjóta skökku við að afsaka stöðuna með því að benda á ytri áhrif, eins og hækkandi olíuverð, í ljósi þess að fyrri ríkisstjórn hafi meðal annars þurft að fást við heimsfaraldur, fall flugfélagsins Wow og jarðelda á Reykjanesi. „Við sjáum líka nálgun ríkisstjórnarinnar bersýnilega í dag þegar háttvirtur þingmaður Dagur B. Eggertsson brást við vaxtahækkuninni með því að segja að kjarni málsins væri upptaka evru. Með öðrum orðum, þegar ríkisstjórnin nær ekki tökum á efnahagsvandanum hér heima þá skulum við bara beina athyglinni annað, ekki að taka ábyrgð, ekki að draga úr ríkisútgjöldum, ekki að hætta við skattahækkanir heldur að segja fólki að lausnin sé einhvers staðar annars staðar. Það er ekki efnahagsstefna. Þetta er fullkomin uppgjöf ríkisstjórnarinnar.“ Frétt af mbl.is Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu Komi ekki til greina að taka upp tillögur flokksins Þegar Kristrún kom upp í pontu að nýju til að svara gagnrýni Guðrúnar gagnrýndi hún fyrri ríkisstjórn fyrir að hafa ekki brugðist við hækkun olíuverðs á sama hátt með því að lækka eða fella niður gjöld á eldsneyti. „Síðustu tveir til þrír mánuðir hafa verið uppfullir af ytri áhrifum. Við tökum þetta alvarlega. Þess vegna erum við í þessu þríhliða samtali. Ég býst við að það komi jákvæðar niðurstöður út úr því. En eitt er á hreinu, það kemur ekki til greina að taka upp tillögur Sjálfstæðisflokksins eins og þau reyndu að stunda hér á síðasta kjörtímabili sem leiddu til 9,25% vaxta og 10% verðbólgu,“ sagði forsætisráðherra. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Afhjúpa málverk af Unni Brá Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Munu örlög Starmers ráðast þann 18. júní? HM í hættu hjá hollensku stjörnunni Ásthildur lætur af störfum Tveir lífeyrissjóðir sameinast Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr meirihluti á Akureyri Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Nýjast á mbl.is » „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Munu örlög Starmers ráðast þann 18. júní? HM í hættu hjá hollensku stjörnunni Ásthildur lætur af störfum Tveir lífeyrissjóðir sameinast Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: Gagnlegt samtal Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar

Share this article