Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Drangey SK ferjar flotbryggju út í nöfnu sína

Read Full Article →

Áhöfnin á Drangey SK 2 tekst í dag á við óvenjulegt skemmtilegt verkefni. „Sérstök sjón blasti við á Sauðárkrókshöfn í dag þegar togarinn Drangey SK 2 togaði einkennilegan pramma upp í rennuna, sem venjulega geymir troll. En þessi prammi er flotbryggja sem á að koma fyrir í Drangey (eyjunni) fyrir sumarið, eins og önnur ár,“ segir á vefsíðu Fisk Seafood. Vösk sveit manna með kafara kemur bryggjunni fyrir Viggó Jónsson, frá Drangeyjarferðum fylgir á eftir á bátnum Hafsól að eyjunni þar sem Drangey SK mun sleppa bryggjunni, enda er ekki togarafært að bryggjusvæðinu þar. „Ásamt Viggó fara þeir Eyþór Jónasson, Adomas Drungilas, Óskar Magnússon, Anton Líni Hreiðarsson og Erlendur Bogason kafari til þess að koma bryggjunni fyrir á sínum stað,“ segir á fisk.is. Uppsetning flotbryggjunnar vorboði eins og lóan Þá segir að Viggó eigi von á fyrsta hóp ferðamanna í eyjuna strax í næstu viku þegar von sé á skemmtiferðaskipi í fjörðinn. Reglulegar ferðir í Drangey hefjist svo að venju þann 1. júní. „Sumir segja að lóan boði sumarið, en hér í Skagafirði er ekkert sem segir sumar frekar en flotbryggjan á leið út í Drangey,“ segir síðan á fisk.is .

Share this article