Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hækka stýrivexti upp í 7,75%

Read Full Article →

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur, upp í 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. Meginvextir Seðlabankans voru síðast jafnháir í maí 2025. Tilbúin að herða taumhaldið enn frekar Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga hafi nefndin talið rétt að hækka vexti bankans. „Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.” Nefndin bendir á að verðbólga hafi verið yfir 5% það sem af er ári og mælist nú 5,2%. „Verðbólguvæntingar hafa hækkað, einkum til skamms tíma. Hækkun þeirra frá því að stríðsátök hófust í Mið-Austurlöndum er þó ekki eins mikil og í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegur þungt að spennan í þjóðarbúinu var töluvert meiri þá.“ Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en spáð var í febrúar. „Mikil hækkun olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlendur verðbólguþrýstingur hafa á sama tíma leitt til þess að verðbólguhorfur hafa einnig versnað. Efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu.“

Share this article