Innlent | Morgunblaðið | 20.5.2026 | 6:00 Andlát: Elín R. Líndal Elín R. Líndal. Setja bókamerki Elín Rannveig Líndal frá Lækjamóti í Húnaþingi vestra, fv. sveitarstjórnarfulltrúi og varaþingmaður, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 9. maí síðastliðinn, tæplega sjötug að aldri. Elín fæddist á Hvammstanga 24. maí árið 1956. Foreldrar hennar voru Sigurður J. Líndal, bóndi, hreppstjóri og varaþingmaður, og Elín H. Líndal húsmóðir. Elín tók gagnfræðapróf frá Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði og lauk diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og einnig í rekstrar- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Elín starfaði lengi á vettvangi stjórnmála, bæði í heimahéraði og á landsvísu. Hún sat í sveitarstjórn Húnaþings vestra í fimm kjörtímabil, fyrstu 20 ár sameinaðs sveitarfélags og var þar áður hreppstjóri Þorkelshólshrepps. Með störfum sínum vann Elín ötullega að uppbyggingu mikilvægra grunnstoða samfélagsins. Hún sat einnig í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga um árabil. Elín gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn, var í landsstjórn, miðstjórn og sveitarstjórnarráði flokksins. Hún tók nokkrum sinnum sæti á þingi sem varamaður á árunum 1988-1999 fyrir Framsókn í þáverandi kjördæmi, Norðurlandi vestra. Elín sat í ýmsum stjórnum og ráðum, m.a. í stjórn Íbúðalánasjóðs, var formaður Jafnréttisráðs, var í verkefnisstjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og formaður Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga. Þá var hún í nokkur ár stjórnarformaður Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Auk þess að vera bóndi á Lækjamóti ásamt manni sínum kom Elín að rekstri nokkurra atvinnufyrirtækja og var framkvæmdastjóri Forsvars á Hvammstanga. Eftirlifandi eiginmaður Elínar er Þórir Ísólfsson, f. 1954. Börn þeirra eru Sigurður, f. 1973, Ísólfur, f. 1978, og Sonja, f. 1986. Barnabörnin eru sjö og barnabarnabörnin tvö talsins. Útför Elínar fer fram frá Hvammstangakirkju mánudaginn 25. maí kl. 13. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bongóblíða vesturhelmingi landsins Andlát: Elín R. Líndal Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Arne Slot að setja met í óvinsældum Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögreglustjórinn: „Ekkert að sjá við fyrstu sýn“ „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Vara við svikapóstum í nafni Skattsins Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Tíu kúluhús fyrir túrista í Fnjóskadal Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Nýjast á mbl.is » Bongóblíða vesturhelmingi landsins Andlát: Elín R. Líndal Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Arne Slot að setja met í óvinsældum Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Vara við svikapóstum í nafni Skattsins Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Tíu kúluhús fyrir túrista í Fnjóskadal Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson