Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ver­ne og Lands­net taka í notkun 240 MW tengi­virki

Read Full Article →

Verne og Landsnet hafa tekið í notkun stærsta tengivirki í einkaeigu á Reykjanesskaga. Nýja 1.500 fermetra tengivirkið, sem Verne fjármagnaði, tengist núverandi tengivirki Landsnets og mun skila allt að 240 MW uppsettu afli í lok árs. Fyrstu 120 MW voru tekin í notkun kl. 16 í dag. Framkvæmdir við mannvirkið hafa staðið yfir frá miðju ári 2023. Verne, sem á og rekur eitt stærsta gangaver landsins á Ásbrú, segir að áfanginn marki mikilvægt skref í uppbyggingu skalanlegra innviða fyrir þunga tölvuvinnslu (HPC). Tengivirkið sé hannað til að tryggja raforku fyrir næstu kynslóð orkufrekrar tölvuvinnslu. „Þetta tengivirki opnar fyrir næsta vaxtarskeið okkar og styður við aukna eftirspurn eftir reiknigetu,“ segir Styrmir Hafliðason , framkvæmdastjóri Verne á Íslandi. „Stuðningur samfélagsins í Keflavík og samstarfið við Landsnet sýna skýrt að Ísland er rétti staðurinn fyrir fjárfestingar í gagnaverum.“ Samkvæmt greiningu Íslandsbanka námu útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu um 110 milljörðum króna árið 2025, sem samsvarar 50% aukningu frá fyrra ári. Í tilkynningunni segir að talið sé að eftirspurn eftir gagnaversþjónustu muni meira en tvöfaldast fyrir lok áratugarins. Ríkarður Ríkarðsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, segir að tengivirkið sé hluti af áframhaldandi uppbyggingu innviða á Reykjanesskaganum. Hann segir samtal Landsnets við sveitarfélög og aðra hagaðila til að tryggja að flutningskerfið sé undirbúið fyrir framtíðareftirspurn halda áfram. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fagnar fjárfestingunni og segir hana skapa forsendur fyrir áframhaldandi vexti gagnavera á svæðinu. „Uppbygging gagnavera af þeirri stærðargráðu sem Verne stendur fyrir hefur mikla þýðingu fyrir Reykjanesbæ, ekki aðeins vegna þess að hún skapar ný störf og styður við auknar skatttekjur, heldur einnig vegna þess að hún opnar ný tækifæri fyrir fyrirtæki og stoðgreinar í nærsamfélaginu, allt frá byggingariðnaði og flutningum til upplýsingatækni, menntunar og sérfræðiþjónustu,“ segir Kjartan Már.

Share this article