Innlent | Morgunblaðið | 19.5.2026 | 10:23 Mikilli niðursveiflu virðist lokið Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í meirihlutaviðræður Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ » Fleiri tengdar fréttir Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum nú var mun meiri í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu en í kosningunum fyrir fjórum árum. Sama gildir um nokkur stærstu sveitarfélögin á landsbyggðinni. Í Reykjavík jókst kjörsókn um rúm fjögur prósentustig og var 65,4%. Svipuð aukning varð í Hafnarfirði þar sem 64,2% skiluðu sér á kjörstað. Stærst var stökkið í Kópavogi og Garðabæ þar sem kjörsókn jókst um tæp tíu prósentustig. Í Kópavogi kusu 67,7% og í Garðabæ 73,9%. Í Mosfellsbæ kusu 68,3% og jókst kjörsókn um tæp fimm prósentustig. Flestir kusu á Seltjarnarnesi, 77,5%, og nam fjölgunin tæpum fimm prósentustigum. Í Reykjanesbæ virðist hafa tekist að auka áhuga íbúa og jókst kjörsókn um rúm fjögur prósentustig. Hún er þó áfram sú lægsta á landinu, eða 51,6%. Á Akureyri var aukningin rúm þrjú prósentustig og fór í 67,9%. Í Árborg var kjörsókn rúm 68% og jókst um rúm fjögur prósentustig. Skagamönnum á kjörstað fjölgaði sömuleiðis. Ríflega sjö prósentustiga aukning varð frá 2022 og nú mættu 69,7% og kusu. Niðursveifla í tvo áratugi Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að þetta séu ánægjuleg tíðindi. Kjörsókn hafi farið minnkandi frá 2006. „Það er mjög gott að kjörsókn sé á leiðinni upp á ný. Hún er hvergi nærri komin þangað sem hún var fyrir 20 árum en þetta er skref í rétta átt.“ Morgunblaðið spurðist fyrir um það hjá landskjörstjórn hvort tölur um kjörsókn á landsvísu lægju fyrir. Svo er ekki enda hafa kosningaskýrslur ekki enn borist frá öllum sveitarfélögum. Grétar segir við Morgunblaðið að fyrst stóru sveitarfélögin séu að hækka sem raun ber vitni muni það toga heildarniðurstöðu fyrir landið upp. Óvenju spennandi í ár Aðspurður segir hann að engar skýringar liggi fyrir um það af hverju kjörsókn minnkaði mikið og hratt á sínum tíma. Aukningin nú kann að skýrast af auknum pólitískum áhuga og að ráðist hafi verið í átaksverkefni í mörgum sveitarfélögum þar sem kosningaþátttaka hefur farið niður á við. „Kannski er það að skila sér,“ segir hann. Þá játar hann því að máli kunni að skipta að kosningarnar nú hafi verið óvenju spennandi. „Já, þegar tekist er á og mikið auglýst hefur það alltaf örvandi áhrif á þátttökuna. Við höfum líka kannski verið komin það neðarlega að ekki varð neðar farið.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í meirihlutaviðræður Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikilli niðursveiflu virðist lokið Hetja Arsenal stálheppin Kremið sem Anne Hathaway treystir á Ekki rétt mynd dregin upp af Pete Davidson Bróðir Díönu kvæntur í fjórða sinn Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Réttindalaus á nagladekkjum og með röng skráningarnúmer Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 „Logn var veðurs,“ eins og þar segir Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Mikilli niðursveiflu virðist lokið Hetja Arsenal stálheppin Kremið sem Anne Hathaway treystir á Ekki rétt mynd dregin upp af Pete Davidson Bróðir Díönu kvæntur í fjórða sinn Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Þessa meirihluta getur Hildur myndað Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Réttindalaus á nagladekkjum og með röng skráningarnúmer Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 „Logn var veðurs,“ eins og þar segir Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi