Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.5.2026 | 23:19 Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Frá samþykkt framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í febrúar. Ljósmynd/Aðsend Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í meirihlutaviðræður Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Talningin tafðist verulega » Fleiri tengdar fréttir „Ég stíg bara upp í þetta hlutverk og safna mínu fólki saman og ræði næstu skref og hvernig við ætlum að nálgast þetta kjörtímabil,“ segir Hildur Rós Guðbjargardóttir, nýr oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti flokksins í kosningabaráttunni og í bæjarstjórn, ákvað að axla ábyrgð á niðurstöðum kosninganna og þiggja ekki sæti í bæjarstjórn. Guðmundur Árni hyggst einnig láta af embætti varaformanns Samfylkingarinnar við hentugt tækifæri. Hildur Rós segir mikla eftirsjá verða af Guðmundi Árna, sem verði þó bæjarstjórnarflokki Samfylkingarinnar innan handar ef á þurfi að halda. Frétt af mbl.is Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Frétt af mbl.is Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Frétt af mbl.is Hugsar sinn gang: „Dómurinn er fallinn“ „Með allt á hreinu“ Hildur lofar störf Guðmundar Árna mjög. „Hann er náttúrulega bara með allt á hreinu og kannski sjá það ekkert endilega allir. Þeir sem þekkja hann ekki eða hafa ekki komist í kynni við hann vita ekki hvað hann hefur og hvaða mann hann hefur að geyma. Hann tekur öll mál sem koma til hans mjög alvarlega og vinnur til hins ýtrasta. Það er mikil lukka fyrir okkur sem erum eftir, mig og Árna Rúnar, að hafa fengið að starfa með honum og sjá hvernig hann vinnur málin. Kannski var ekki nógu mikið mont í okkur að tala nógu mikið um hvað hann gerir góða hluti og hefur alltaf gert. Þeir sem hafa í alvörunni leitað til hans hafa bara gott um hann að segja og hann hefur alltaf reynst þeim vel.“ Frétt af mbl.is Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Eiga helling inni í Kratabænum Samfylkingin missti tvo menn af fjórum úr bæjarstjórn á milli kosninga og segir Hildur það sannarlega mikil vonbrigði. „Við áttum heiðarlega kosningabaráttu og fórum ekki í manninn heldur málefnin þannig að við göngum í rauninni bara stolt frá þeirri kosningabaráttu,“ segir hún. Guðmundur Árni axlar ábyrgð og ekki í fyrsta skipti sem hann kýs að gera það á sínum pólitíska ferli. Það segir Hildur að sé bara Guðmundur. „Svona maður er Guðmundur.“ Hildur er þriðji varaþingmaður Samfylkingarinnar og hefur tekið sæti Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. Hún hefur þá setið í bæjarstjórn frá sveitarstjórnarkosningunum 2022 og verið enn lengur í grasrótarstarfi Samfylkingarinnar og setið í framkvæmdastjórn flokksins og verið formaður Kvennahreyfingarinnar áður. Hún segir jafnaðarmannataug í Hafnfirðingum, sem sé Kratabær, og Samfylkingin eigi helling inni. Frétt af mbl.is Guðmundur Árni: „Við uppskerum eins og við sáum“ Hafnfirðingar vilja Valdimar áfram Hildur segir niðurstöður kosninganna mjög skýrar fyrir sér. Hafnfirðingar vilji hafa Valdimar Víðisson sem bæjarstjóra áfram. Hvernig líst þér á framhaldið með hann áfram við stýrið? „Valdimar er bara frábær. Hann vill hlusta á fólk og sýnir fólki og málum áhuga. Ég hef fulla trú á honum sem bæjarstjóra. Ég held að Hafnfirðingar séu að segja það sama.“ Hildur segir árangur Framsóknarflokksins ekkert gripin úr tóminu. Hann sé augljóslega út af Valdimari en flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa. Fáið þið að taka þátt í einhverju samtali um myndun meirihluta? „Við erum náttúrulega opin fyrir því og Valdimar veit að við erum tilbúin til að una þeirri niðurstöðu sem Hafnfirðingar kölluðu eftir um að hann eigi að vera bæjarstjóri. Ef það þarf liðsstyrk þá erum við hér. Þá væntanlega ásamt Viðreisn því það þyrfti annan flokk með? „Já.“ Vill ekki lyfta orðræðu Miðflokksins frekar upp Sjálfstæðisflokkurinn tapaði manni frá síðustu kosningum og segir Hildur flokkinn hafa gert það markvisst tvennar kosningar í röð. „Mér finnst bara kominn tími á smá hvíld. Ég er búin að sjá mikla þreytu í þeim sérstaklega og verkkvíða á þessu kjörtímabili.“ Hildi hugnast verr meirihlutasamstarf með Framsóknarflokki og Miðflokki. „Já nei, það er ekki inni í okkar bókum. Orðræðan sem kemur þaðan er ekki eitthvað sem ég vil lyfta frekar upp eða gefa stærra rými þannig að ef ég fengi að ráða þá kemur það ekki til greina.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í meirihlutaviðræður Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Talningin tafðist verulega » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Kannski var þetta síðasta árið mitt Skotið til bana eftir að hafa sært 72 ára gamlan mann Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Lögreglustjórinn: „Ekkert að sjá við fyrstu sýn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Kannski var þetta síðasta árið mitt Skotið til bana eftir að hafa sært 72 ára gamlan mann Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildi liggur ekki lífið á Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Lögreglustjórinn: „Ekkert að sjá við fyrstu sýn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi

Share this article