„Þetta hefur verið draumurinn okkar allra,“ sagði Hulda María Agnarsdóttir úr liði Njarðvíkur sigurreif eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í körfubolta með Njarðvík í gærkvöld eftir sigur á Haukum í fjórða úrslitaleik liðanna, 95-70. En hvað einkennir þetta Njarðvíkurlið að mati Huldu? „Traust og liðsheild. Við erum allar bestu vinkonur.“ Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. „Ég er búin að bíða eftir þessu mjög lengi, þannig að þetta er bara æðislegt,“ sagði Krista Gló Magnúsdóttir úr Njarðvíkurliðin í fagnaðarlátunum í gærkvöld. „Við vissum að þetta yrði erfiður leikur því Haukar væru að berjast fyrir lífi sínu. En við ætluðum okkur bara sigurinn og framkvæmdum það sem við ætluðum okkur,“ sagði Krista. Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. Njarðvíkingar kvöddu sinn gamla heimavöll, Ljónagryfjuna árið 2024 og fluttu í nýtt og stærra hús. Íslandsmeistaratitillinn í gær var því fyrsti titill Njarðvíkur í nýja húsinu. Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. „Þetta er fyrsti titillinn okkar á heimavelli síðan Gunnar Örlygs setti partý árið 1991. Þannig það er bara við hæfi fyrir þetta félag að stelpurnar okkar brjóti ísinn. Þetta félag hefur verið til fyrirmyndar gagnvart kvennaíþrótt, fólkið okkar hefur verið stórkostlegt og framtíðin er björt. Við eigum frábæra yngri flokka og þetta er afrakstur mikilla vinnu til margra ára og ég bara ótrúlega stoltur af þessu félagi,“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga.