Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Tvær herþotur skullu saman á flugsýningu

  • What: Two Boeing aircraft collided during a flight demonstration in Idaho
  • Impact: No injuries reported, but the incident highlights aviation safety concerns
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tvær her­þot­ur skullu saman á flug­sýn­ingu Markús Þ. Þórhallsson Hér má sjá reyk stíga upp þaðan sem þoturnar skullu til jarðar. AP/Lisa Van Horne / Lisa Van Horne Tvær Boeing-herþotur skullu saman á flugsýningu í Idaho í Bandaríkjunum í dag. Áreksturinn varð í um tveggja kílómetra fjarlægð frá Mountain Home-herflugvellinum. Öllum fjórum sem voru um borð tókst að skjóta sér út í fallhífum og sakaði ekki samkvæmt fréttum bandarískra miðla. Fyrir 45 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Sér­stak­ur er­ind­reki Banda­ríkj­anna kom til Nuuk í dag Ríkisstjóri Louisiana og sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Grænlands kom þangað í dag. Hann er í för með sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku og mun meðal annars hitta formann landsstjórnarinnar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Myndi aldrei kæra sig um að leiða meiri­hluta þar sem for­dóm­ar gagn­vart minni­hluta­hóp­um eru liðnir Hildur Björnsdóttir segist ekki kæra sig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru liðnir. Sanna Magdalena Mörtudóttir segir að áhyggjuraddir séu uppi í samfélaginu um myndun á mögulegri hægri stjórn. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarð­vík valt­aði yfir Hauka og er Ís­lands­meist­ari Njarðvík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir stórsigur gegn Haukum, 95-70. Njarðvík spilaði glimrandi vel í kvöld og hefndi fyrir tapið gegn Haukum fyrir ári. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nær 1.200 manns strik­uðu yfir nafn Heiðu Bjarg­ar Ríflega 1100 borgarbúar strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra Reykjavíkurborgar í nýafstöðnum sveitarstjórnarnkosningum. Við yfirferð kjörstjórnar kom sömuleiðis í ljós innsláttarvilla sem hafi þó engin áhrif. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Það var mót­vind­ur nánast frá fyrsta degi“ Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að það hafi verið mikill mótvindur í kosningabaráttunni. Flokkurinn þurfi að gera betur og hlusta meira. Hann efast um að óvinsældir fráfarandi borgarstjóra hafi haft áhrif á gengi flokksins. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hólmar tryggði Vals­sig­ur með flautu­marki Hólmar Örn Eyjólfsson reyndist hetja Valsmanna í kvöld er hann skoraði sigurmark í uppbótartíma gegn Breiðablik. Valur vann 3-2 sigur. Þá urðu Framarar fyrsta liðið til að taka stig af KR-ingum í sumar er liðin gerðu 2-2 jafntefli. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nið­ur­stöð­urn­ar ákveð­ið við­vör­un­ar­merki fyrir for­sæt­is­ráð­herra Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður kosninganna viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, sem hingað til hafi verið í miklum meðbyr. Flokkurinn þurfi að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Far­menn hjá Eim­skip­um boða verk­fall að nýju Farmenn hjá Eimskipum boða ótímabundið verkfall. Formaður samninganefndar þeirra segir ágreininginn m.a. snúa að starfsöryggi íslenskra sjómanna hjá Eimskipafélaginu, sem er að hluta skráð erlendis. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Golf Aron og Perla unnu Reykja­nes­mót­ið Aron Snær Júlíusson og Perla Sól Sigurbrandsdsóttir unnu Reykjanesmótið á GSÍ mótaröðinni í golfi. Þetta er fyrsta mótið á mótaröðinni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reyndu að auka kjör­sókn er­lendra íbúa í Reykja­nes­bæ Líkt og í síðustu sveitarstjórnarkosningum var kjörsókn í Reykjanesbæ lægst allra sveitarfélaga. Formaður yfirkjörstjórnar segir sveitarfélagið hafa reynt að auka kosningaþátttöku íbúa í aðdraganda kosninga. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Stjarn­an tvö­fald­ur Ís­lands­meist­ari Stjarnan varð Íslandsmeistari í hópfimleikum í kvenna- og karlaflokki. Nýstofnað lið Aftureldingar varð Íslandsmeistari í blönduðum flokki. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fram­sókn bætti við sig tveim­ur í Grinda­vík — bæj­ar­bú­um alvara með end­ur­upp­bygg­ingu Oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík telur sig hafa fengið skýrt umboð til meirihlutamyndunar í bænum. Hún segir góða kjörsókn til marks um að Grindvíkingum sé alvara með endurreisn bæjarins. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Skaga­menn klifra upp töfl­una Jóhann Páll Ástvaldsson Skagamenn fagna marki gegn Fram fyrr í sumar. Framherjarnir tveir Viktor og Gabríel sáu um mörkin í dag. Mummi Lú ÍA vann Þór 1-2 í Bestu deild karla í fótbolta. Þar með fer ÍA upp í 6. sæti úr því tíunda. Þór er í 9. sæti. Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir eftir aukaspyrnu. Guðmundur Þórarinsson sveiflaði vinstri fæti og fann Viktor á fjærstönginni sem skoraði með flugskalla eftir 37 mínútur. Markús Páll Ellertsson óð inn á teiginn og Aron Birkir í marki Þórs náði ekki að halda föstu skoti hans. Þetta var sjötta mark hans í sex leikjum. Affi minnkaði muninn með skallamarki í slána og inn eftir hornspyrnu á 55. mínútu. Affi braut á Markúsi Páli skömmu síðar innan teigs. Aron Birkir varði hins vegar vítaspyrnu Viktors Jónssonar virkilega vel á 57. mínútu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sex réðust á einn og annar gaf börnum bjór í strætó Þorgerður Anna Gunnarsdóttir RÚV / Alexander Kristjánsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sex í miðbæ Reykjavíkur í dag vegna líkamsárásar gegn einum manni. Sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, nokkuð meiddur, að því er segir í dagbók lögreglu. Einn hinna handteknu var vistaður í fangaklefa en látinn laus að skýrslutöku lokinni. Þá fékk lögreglan tilkynningu vegna manns sem var að gefa börnum bjór í strætó. Hann fannst ekki eftir leit lögreglu. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Skotar segja ekkert at­huga­vert við lok úr­slita­leiks­ins Jóhann Páll Ástvaldsson Stuðningsmaður Celtic tekinn í burtu af vallarstarfsmönnum. IMAGO Skoska knattspyrnusambandið hefur gefið út yfirlýsingu varðandi endalok úrslitaleiks skosku deildarinnar í gær. Celtic vann 3-1 sigur og þar með titilinn en stuðningsmenn þutu inn á völlinn þegar þeir fögnuðu marki undir leikslok. Leikurinn var hins vegar ekki búinn og töldu margir að enn ætti eftir að leika hluta leiksins. Í yfirlýsingu sambandsins segir að það hafi verið skýrt að dómari leiksins Don Robertson hafi flautað af. Þá fordæmdi sambandið hegðun stuðningsmanna Celtic og minnti á að athæfið hefur verið ólöglegt frá 1991. Sambandið hrósaði Robertson fyrir vel dæmdan leik. Meira má lesa um málið hér. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær „Það þarf eitt­hvað mikið að gerast til að þetta fari til fjand­ans“ Meirihlutaviðræður á Akureyri eru langt á veg komnar þrátt fyrir að mikil dreifing hafi verið á fylgi flokkanna í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Miðflokki verður skipt út fyrir Framsóknarflokk í meirihlutasamstarfi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Kín­verji í gæslu­varð­haldi í Noregi grun­að­ur um njósn­ir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Salten- og Lofoten dómstóllin úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald. NRK / Ine-Sofie Bruhaug Kínverskur maður hefur verið handtekinn í Noregi grunaður um njósnir fyrir Kína. Maðurinn var handtekinn í Norðurlandi í Noregi á föstudag og var í morgun úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, þar af tvær vikur í einangrun, að því er norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Lögmaður mannsins segir hann ekki hafa játað njósnir í yfirheyrslum lögreglu eða fyrir dómi. Norski herinn hefur verið upplýstur um málið en vill ekki tjá sig frekar. Talsverð uppbygging hernaðarinnviða stendur yfir í Norðurlandi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar á Ís­landi fá topp­ein­kunn hjá eft­ir­lits­nefnd Eftirlitsmenn í sjö teymum á vegum Evrópuráðsins fylgdust með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna. Í áliti nefndarinnar segir að kosningarnar hafi farið fram með skilvirkum og heiðarlegum hætti. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Vík­ing­ar tóku topp­sæt­ið um stund Jóhann Páll Ástvaldsson Valdimar Þór Ingimundarson á fleygiferð. Mummi Lú Víkingur Reykjavík er komið í toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 0-2 sigur gegn ÍBV. Víkingar fara þar með í 19 stig og eru taplausir eftir sjö leiki. Liðið fór upp fyrir KR sem mætir Fram í kvöld. KR er sem stendur með 18 stig og hefur unnið alla leiki sína. Markalaust var í hálfleik en Óskar Borgþórsson kom Víkingi yfir með skalla eftir fyrirgjöf Elíasar Más Ómarssonar á 51. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson tvöfaldaði svo forskot Fossvogsliðsins með marki frá miðju eftir að Ari i Haraldstovu Petersen átti misheppnaða hreinsun. ÍBV er sem fyrr í neðsta sæti en liðið er án sigurs að sjö leikjum loknum. Liðið er með eitt stig. 17. maí 2026 kl. 13:33ÍÞRÓTTIR Fótbolti Bruno jafn­aði stoð­send­inga­met­ið Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, jafnaði stoðsendingametið í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Hann, Thierry Henry og Kevin de Bruyne hafa allir gefið tuttugu stoðsendingar. 17. maí 2026 kl. 13:22INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hildi hugn­ast báðir kostir um meiri­hluta­sam­starf Oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni hugnast bæði meirihlutasamstarf með Miðflokki og með Viðreisn og Framsóknarflokki. 17. maí 2026 kl. 13:17INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Telur að bæj­ar­bú­ar hafi ekki kunnað að meta af­skipti Krist­rún­ar Bæjarstjórinn í Kópavogi telur að bæjarbúar hafi ekki kunnað að meta ummæli forsætisráðherra um rekstur sveitarfélagsins. Hún styður samgöngusáttmálann og telur að bæjarbúar vilji halda áfram á sömu braut. 17. maí 2026 kl. 13:02INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nið­ur­stöð­urn­ar styrkja hvorki stöðu Krist­rún­ar né Sam­fylk­ing­ar­inn­ar Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður kosninganna hvorki styrkja stöðu forsætisráðherra né Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnarflokkar hafi þó áður sopið stórsjó í sveitarstjórnarkosningum en úrslitin séu góð fyrir formann Sjálfstæðisflokksin

Share this article