Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að gleðin sé mikil í hennar herbúðum í kvöld. Niðurstaðan sé góð víða um land og fyrstu tölur úr Reykjavíkurborg séu rúsínan í pylsuendanum. Sjálfstæðisflokkurinn er með 31,9% og bætir við sig þremur borgarfulltrúum í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum. Sjálfstæðismenn eru einnig að skila góðum árangri í sveitarfélögum víða um landið. „Mig grunaði að kvöldið yrði gott en að það yrði svona stórkostlegt eins og raunin er, það er mjög ánægjulegt,“ sagði Guðrún á kosningavöku RÚV. Hún sagðist trúa því að forysta hennar og áhersla á samstöðu og öfluga grasrót hafi skipt sköpum. Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins voru himinlifandi yfir þeim niðurstöðum sem liggja fyrir í sveitarstjórnarkosningunum í kvöld. Formaður Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá betri niðurstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði flokksmenn vera himinlifandi. Hann líkti árangri Miðflokksins víða um land við „pólitískan jarðskjálfta“. Miðflokkurinn er með 13,1% í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum og þrjá borgarfulltrúa. „Það er komið nýtt afl í sveitarstjórnarmálin á Íslandi,“ sagði Sigmundur. Tækifæri fyrir Miðflokksmenn að sitja í sveitarstjórnarmeirihluta séu víða mikil en þær ákvarðanir séu í höndum heimamanna á hverjum stað. Samfylkingin er með 18,6% samkvæmt fyrstu tölum úr borginni og heldur þá sínum fimm fulltrúum. „Það eru margar leiðir til að túlka niðurstöðurnar,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Þetta er erfitt hérna á höfuðborgarsvæðinu, þetta hefur alltaf verið erfitt í Kraganum, hann hefur verið mjög blár í langan tíma.“ Niðurstaðan sé blönduð, því þrátt fyrir að hafa viljað sjá meira fylgi á höfuðborgarsvæðinu sé Samfylkingin að sjá góðan árangur víða um landið.