Nýr Toyota bz4X Touring verður forsýndur hjá Toyota í Kauptúni á morgun en um er að ræða Touring-útfærslu af hinum vinsæla rafbíl bz4X. Samhliða forsýningunni verður nýr sýningarsalur Toyota formlega tekinn í notkun. Toyota bz4X Touring er 4.830 mm langur og er jafnframt lengri og hærri en hefðbundinn bz4X. Hann er með 669 lítra skott sem stækka má í 1.718 lítra með því að fella aftursætin niður. Bíllinn er í boði bæði sem framhjóla- og fjórhjóladrifinn. Í fjórhjóladrifsútfærslu skilar rafhlaðan alls 380 hestöflum og er aðeins 4,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Drægnin er 528 km samkvæmt WLTP staðli. Sjá einnig Frumsýna Urban Cruiser og RAV4 Rafhlöðurnar skila bílnum 224 hestöflum og er hann 7,3 sekúndur í hundraðið. Dráttargeta Touring er þar að auki allt að 1.500 kg. Í sýningarsalnum verður jafnframt öll nýjasta línan frá Toyota, þar á meðal nýr RAV4 og nýjustu rafmagnsbílarnir; Urban Cruiser, C-HR+ og bZ4X auk hins nýja Touring.