Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfir 200 þúsund á hótelum og veitingastöðum í kortafærslum bæjarstjóra Akureyrar

Read Full Article →

Ásthildur Sturludóttir hefur notað innkaupakort sem hún hefur til umráða sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar fyrir rúmlega 200.000 krónur síðan í nóvember. Samkvæmt færsluyfirliti frá Akureyrarbæ var það notað fimm sinnum á veitingastöðum eða hótelum og einu sinni til að greiða fyrir leigubíl. Mestu var varið á veitingastaðnum Centrum Kitchen & Bar í byrjun febrúar, eða rúmlega 70.000 krónum. Þar á eftir er færsla upp á 50.000 á Hótel Varmalandi í Borgarnesi um miðjan apríl. Kortið var notað erlendis í eitt skipti á uppgefnu tímabili. Í lok nóvember voru greiddar rúmlega 60.000 krónur á Scandic Webers hótelinu í Kaupmannahöfn. Færslur á innkaupakorti Ásthildar 26. nóvember 2025: Scandic Webers FO – 60.138 krónur. 27. nóvember 2025: Hreyfill – 2.350 krónur 3. febrúar 2026: Múlaberg Bistro bar – 9.220 krónur. 6. febrúar 2026: Centrum kitchen & bar – 70.570 krónur. 26. mars 2026: Strikið Restaurant – 16.230 krónur. 17. apríl 2026: Hótel Varmaland – 50.000 krónur. Nánari skýringar á færslunum fylgdu ekki svari Akureyrarbæjar. Mikið hefur verið fjallað um kortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra Reykjavíkur. Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum um kortanotkun bæjarstjóra nokkurra af stærstu sveitarfélögum landsins. Flestir þeirra hafa ekki innkaupakort til umráða en einhverjir hafa fengið útlagðan kostnað endurgreiddan. Svör frá Akureyrarbæ bárust síðdegis í dag. Akureyrarbær er með almennar reglur varðandi innkaupakort, samkvæmt skriflegu svari frá skrifstofu Akureyrarbæjar við fyrirspurn fréttastofu. Verið er að fara yfir reglurnar í því skyni að uppfæra þær en sú „vinna er auðvitað algjörlega óháð tilefni fyrirspurnar“, að því er fram kemur í svarinu, og var hún hafin fyrir nokkru. „Hér er farið með almannafé“ Gert er ráð fyrir að innkaup Akureyrarbæjar séu sett í reikning en ekki greidd með innkaupakorti og að þau séu helst notuð þegar annar greiðslumáti hentar ekki eða er ekki í boði. „Hér er farið með almannafé og jafnvel þó upphæðir séu ekki háar þarf að vera hægt að sýna fram á að fénu hafi verið eytt í eitthvað sem viðkemur starfsemi stofnunarinnar,“ segir í reglum Akureyrarbæjar um notkun innkaupakorta. 54 kortum hefur verið úthlutað frá Akureyrarbæ, aðallega til stjórnenda og forstöðumanna en matráðar hafa einnig innkaupakort til umráða.

Share this article