Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 10:46 Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Að jafnaði voru karlar í fullu starfi með fleiri greiddar vinnustundir en konur í fullu starfi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Laun á íslenskum vinnumarkaði voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári. Ef horft er eingöngu til launafólks í fullu starfi voru laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Laun um 64% launafólks í fullu starfi eru undir meðaltali en það hlutfall skýrist af dreifingu launa. Lægstu launin dreifast á mun minna bil en hæstu launin sem veldur því að hæstu launin hafa mun meiri áhrif á meðaltalið en lægstu launin. Íslenskur vinnumarkaður mjög kynskiptur Heildarlaun fólks í fullu starfi voru að meðaltali 1.058 þúsund krónur. Helmingur karla í fullu starfi var með heildarlaun yfir 1.007 þúsund krónum á mánuði en helmingur kvenna í fullu starfi var með heildarlaun yfir 902 þúsund krónum á mánuði. Að jafnaði voru karlar í fullu starfi með fleiri greiddar vinnustundir en konur í fullu starfi. Greiddar stundir karla voru að meðaltali 176,9 stundir á mánuði en hjá konum voru þær 169,9. Fleiri greiddar stundir að jafnaði hjá körlum skýrir að hluta til hærri heildarlaun þeirra. Þar að auki er íslenskur vinnumarkaður mjög kynskiptur. Til dæmis störfuðu um 17% starfandi karla hjá hinu opinbera samanborið við 40% starfandi kvenna. Hæstu og lægstu heildarlaunin Ef horft er til einstakra starfa voru forstjórar og aðalframkvæmdastjórar fyrirtækja og stofnana að jafnaði með hæst heildarlaun eins og verið hefur síðustu ár eða um 2,5 milljónir króna að meðaltali á mánuði. Dæmi um störf þar sem heildarlaun eru að meðaltali hærri en 1,7 milljónir króna á mánuði eru dómarastörf, sérfræðistörf við lækningar, störf yfirmanna framleiðslu- og rekstrardeilda í þjónustufyrirtækjum, störf tengd ráðgjöf og sölu verðbréfa, störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjórna, sérfræðistörf við flugumsjón og yfirmenn tölvudeilda. Lægstu heildarlaunin voru í skrifstofustörfum við bóka- og skjalavörslu, póstflokkun, kótun og þess háttar þar sem heildarlaun voru að jafnaði um 597 þúsund krónur á mánuði, í störfum tengdum barnagæslu, 641 þúsund krónur á mánuði, og störfum við handþvott og pressun, 647 þúsund krónur á mánuði. Starfsfólk í þjónustu og umönnun með lægri heildarlaun Meðaltal heildarlauna í fullu starfi eftir starfsstéttum var á bilinu 766 til 1.634 þúsund krónur á mánuði, lægst hjá ósérhæfðu starfsfólki en hæst hjá stjórnendum. Dreifing heildarlauna er nokkuð mismunandi eftir starfsstéttum, sem getur skýrst af ólíkum störfum innan einstakra starfsstétta. Það á meðal annars við um stjórnendur, bæði æðstu stjórnendur fyrirtækja og yfirmenn deilda. Launadreifing heildarlauna í fullu starfi sýnir meðal annars að nærri 63% starfsfólks í fullri vinnu við þjónustu og umönnun er með lægri heildarlaun en sem nema 800 þúsund krónum á mánuði og um 13% voru með heildarlaun á bilinu 600–650 þúsund. Launadreifing heildarlauna skrifstofufólks er mun einsleitari en innan annarra stétta þar sem um 65% fullvinnandi voru með heildarlaun á bilinu 600 til 900 þúsund krónur á mánuði. Mun meiri dreifing heildarlauna var sjáanleg á meðal sérfræðinga, stjórnenda og iðnaðarfólks. Stytting vinnuvikunnar hefur ekki áhrif Þessar bráðabirgðaniðurstöður eru byggðar á launagögnum Hagstofunnar sem ná til tæplega 100 þúsund launafólks. Stytting vinnuvikunnar hefur ekki áhrif á mánaðarlaun þar sem laun haldast óbreytt þó að vinnustundum að baki mánaðarlaunum fækki. Aftur á móti hefur greiddum stundum fækkað frá árinu 2019 sem bæði má rekja til styttingar vinnuviku og fækkunar yfirvinnustunda. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » X26: Þrír dagar til kosninga og oddvitar takast á Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Dýrasta vistunin í Garðabæ Á von á sínu þriðja barni með nýrri konu Skrefi nær Opna bandaríska meistaramótinu Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Veikleiki í Innu: „Lítum málið mjög alvarlegum augum“ Dýrasta vistunin í Garðabæ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » X26: Þrír dagar til kosninga og oddvitar takast á Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Dýrasta vistunin í Garðabæ Á von á sínu þriðja barni með nýrri konu Skrefi nær Opna bandaríska meistaramótinu Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg

Share this article