Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.5.2026 | 8:30 Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Verkfræðingar frá COWI meta aðstæður á slysstað í Grindavík 26. mars síðastliðinn. Ljósmynd/Skýrsla COWI Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Grindavíkurúrræði að ljúka: 200 íbúðir á sölu „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ » Fleiri tengdar fréttir Verktakafyrirtækið COWI telur besta kostinn að síga niður að jarðneskum leifum Lúðvíks Péturssonar sem lést í voveiflegu banaslysi í Grindavík í janúar árið 2024. Metur fyrirtækið það vænlegri kost en að raska jörð með greftri eða sprengingum. Þetta kemur fram í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins sem fól verktakafyrirtækinu að kanna aðstæður á slysstað. Aðstæður of hættulegar Lúðvík lést þegar hann féll ofan í sprungu og mátu björgunaraðilar aðstæður á vettvangi of hættulegar til að sinna björgunarstörfum 12. janúar eða tveimur dögum eftir atvikið. Frá þeim tíma hafa verið uppi vangaveltur um það hvort og hvernig best sé að ná að þeim stað sem talið er að Lúðvík sé að finna. Endanleg ákvörðun um það hvort ákveðið verði að fara í frekari björgunaraðgerðir liggur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem fengið hefur minnisblaðið í sínar hendur. Dómsmálaráðuneytið ákvað hins vegar að fjármagna skýrslugerðina til að kanna fýsileika björgunaraðgerða. Frétt af mbl.is Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Bergið nokkuð traust Í skýrslu COWI er meðal annars farið yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í viðleitni björgunarmanna til að finna Lúðvík. Enn sem komið er hefur ekki sést til hans en fram kemur að Lúðvík hafi ekki verið í sýnileikafatnaði heldur klæðst lopapeysu og jarðlitum sem falla inn í umhverfið. Fram kemur að „síðast var í desember 2025 farið ofan á hrunhauginn í sprungunni og „stæðni bergs umhverfis opið metin sem og stæðni bergs í veggjum við hrunhauginn. Heilt yfir er stæðni bergs í veggjum gjárinnar og við gatið nokkuð góð,“ segir í skýrslu. Frétt af mbl.is Forstjórinn með stöðu sakbornings Leit skipt í stig Leggja skýrsluhöfundar til að leitaraðgerðum verði skipt í nokkur stig þar sem umfang og þungi aðgerða ykist smám saman eftir því sem reynsla og upplýsingar fengjust á vettvangi. Fyrstu skrefin fælust í sjónskoðun og minni háttar tilfærslu efnis með handafli, en síðar kæmu til umfangsmeiri aðgerðir með handverkfærum, loftpúðum og mögulegri tilfærslu stærri steina. Áhersla er lögð á að endurmeta stöðuna í hvert sinn sem eitthvað markvert finnst. Sérfræðingarnir fóru yfir myndir og mælingar í sprungunni og telja ekki rétt, á þessu stigi málsins, að ráðast í stórfelldar aðgerðir á borð við sprengingar eða umfangsmikla fjarlægingu efnis úr gjánni. Bent er á að slíkar aðgerðir gætu jafnvel orðið til þess að líkamsleifar færðust neðar í sprunguna og torvelduðu leit enn frekar. Þrátt fyrir að bergið sjálft teljist að mestu stöðugt sé enn talsvert af lausu grjóti á svæðinu og áfram hætta á hruni ofan frá. Frétt af mbl.is Talinn vera undir mölinni Uppfylla ekki öryggiskröfur Í skýrslunni er lögð rík áhersla á að allar frekari aðgerðir verði unnar með mikilli varúð og að hvert skref verði metið sérstaklega. Bent er á að aðstæður á vettvangi uppfylli ekki hefðbundnar öryggiskröfur vegna vinnu undir bröttum bergveggjum og því geti aðeins þjálfaðir sérfræðingar með réttan búnað unnið verkið. Gert er ráð fyrir að þrír sigmenn og einn stjórnandi taki þátt í leitinni, þar sem aðeins tveir fari niður í sprunguna í einu á meðan fylgst er náið með af yfirborði með myndavélum, ljósabúnaði og sérstökum öryggisbúnaði. Einnig er lagt til að leit hefjist með varfærinni notkun rústabjörgunarmyndavéla og að forðast verði eins og kostur er að hreyfa við efni í sprungunni. Ef vísbendingar finnast um staðsetningu líkamsleifa verði unnið nýtt áhættumat. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir við Morgunblaðið að minnisblaðið sé í rýni hjá embættinu. Hún segir að ákvörðun um frekari aðgerðir verði tekin eftir að embættið hefur rýnt í minnisblaðið. Hún vonast til að ákvörðun liggi fyrir sem fyrst. Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Grindavíkurúrræði að ljúka: 200 íbúðir á sölu „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lentu í ævintýrum í Eldvatninu Ferillinn búinn hjá samfélagsmiðlastjörnunni? ESB býður talíbönum til viðræðna Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann Fylgjast vel með hantaveirunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Andlát: Eyvindur Erlendsson „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Aðgangsbeiðni Mílu ítrekað synjað Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Nýjast á mbl.is » Lentu í ævintýrum í Eldvatninu Ferillinn búinn hjá samfélagsmiðlastjörnunni? ESB býður talíbönum til viðræðna Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umræðan vekur ugg meðal lækna Segir góðmennskuna í raun vera grimmd X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Andlát: Eyvindur Erlendsson „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Aðgangsbeiðni Mílu ítrekað synjað Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn

Share this article