Innlent | mbl | 9.5.2026 | 16:16 „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Í færslu á Facebook segist Dóra ekki hafa vitað hversu nálægt byggingin væri íbúabyggð, enda hafi það ekki komið skýrt fram í þeim gögnum sem hún hafði undir höndum. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Óboðlegur sveigjanleiki Engin starfsemi hafin í „græna gímaldinu“ Kjötvinnsla staðfest í Álfabakka „Mistök“ að drög að harðorðri umsögn voru birt Telur ólíklegt að hætt verði við gerð göngustígsins » Fleiri tengdar fréttir Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar kveðst ánægð með að tölvupóstar þeir sem vitnað er í í Morgunblaðinu í dag hafi komið fram. Þeir staðfesti að hún hafi gert allt í sínu valdi til að koma í veg fyrir að græna gímaldið risi í þeirri mynd sem það gerði. Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er greint frá því að blaðið hafi undir höndum tölvupósta milli kjörinna fulltrúa í Reykjavík, embættismanna og forsvarsmanna Eignabyggðar ehf., framkvæmdaaðila við Álfabakka 2a, þar sem fram kemur að meirihlutinn í Reykjavík gerði sér grein fyrir umfangi byggingarinnar áður en hún reis, þrátt fyrir yfirlýsingar um að það kæmi þeim í opna skjöldu þegar húsið var risið. „Í tölvupósti frá Dóru Björt Guðjónsdóttur til Einars Þorsteinssonar borgarstjóra kemur fram að vöruhúsið við Álfabakka 2a sé ekki hlýlegt viðmót fyrir hverfið og „eins og þessi starfsemi komi hverfinu ekki við“. Þar kemur jafnframt fram að hún vilji fá álit borgarhönnuðar þar sem unnið verði með „skaðaminnkun“,“ segir í fréttinni. Hafði ekki formlegt umboð Í færslu á Facebook segist Dóra ekki hafa vitað hversu nálægt byggingin væri íbúabyggð, enda hafi það ekki komið skýrt fram í þeim gögnum sem hún hafði undir höndum. Þrátt fyrir það hafi hún séð um leið að verkefnið þyrfti að hugsa betur og taka þyrfti meira tillit til hverfisins. „Þrátt fyrir að hendur mínar hafi að verulegu leyti verið bundnar af deiliskipulagi sem var samþykkt í minni fjarveru á meðan ég var í fæðingarorlofi þar sem allt of fáir skilmálar lágu fyrir, gerði ég það sem ég gat til að knýja fram betri lausn fyrir svæðið,“ skrifar hún. „Á þessum tímapunkti hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið og bæði skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi bentu mér á að ég væri komin út fyrir það sem venjulega telst hlutverk formanns.“ Frétt af mbl.is Óboðlegur sveigjanleiki „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál, meðal annars vegna þess að ég fór ekki í felur þegar gagnrýnin kom fram. Ég reyndi að útskýra stöðuna og sýna borgarbúum að mér stóð ekki á sama, jafnvel þótt ég bæri ekki ábyrgð á deiliskipulaginu sjálfu,“ skrifar Dóra. Hún hafi fengið umhverfis- og skipulagssvið til að funda með uppbyggingaraðilum um breytingar á húsinu, aukinn gróður og meira uppbrot í ásýnd byggingarinnar. Þegar henni þótti sú vinna ekki ganga nægilega langt hafi hún óskað eftir fundi með uppbyggingaraðilum og þrýst á frekari úrbætur. Svörin sem henni voru gefin á þeim fundi hafi aftur á móti sýnt hversu hamlandi takmarkaðir skilmálar deiliskipulagsins voru gagnvart samningsstöðunni. Hefði getað komið í veg fyrir málið „Mér finnst líklegt að byggingin hefði getað fengið betri útfærslu ef ég hefði komið að málinu fyrr í ferlinu, áður en deiliskipulagið var síðast samþykkt. Sem formaður skipulagsráðs hef ég ítrekað beitt mér fyrir breytingum og meiri gæðum í borgarhönnun. Ég hefði gert það í þessu máli líka,“ heldur Dóra áfram. Þá hafi hún komið hugmyndinni um borgarhönnunarstefnu inn í pólitíkina áður en þetta mál kom upp, haldið henni á lofti við litlar undirtektir og leitt vinnuna sem formaður stýrihópsins. Það sé hennar mat að ef hún hefði fengið að fara af stað með þá vinnu á síðasta kjörtímabili hefði það getað komið í veg fyrir þetta mál. „Undir minni forystu voru jafnframt gerðar miklar breytingar á ferlum og stjórnskipulagi skipulags- og uppbyggingarmála með það að markmiði að straumlínulaga vinnuna og skapa skýrari ábyrgðarkeðjur sem tryggja betur gæði í uppbyggingu borgarinnar. Ef þessari vinnu verður fylgt eftir af alvöru getum við stoppað í götin í kerfinu og dregið verulega úr líkunum á því að sambærileg mistök endurtaki sig. Það er því mín einlæga ósk að ný borgarstjórn fylgi þessum mikilvægu verkefnum fast eftir núna eftir að ég kveð sviðið.“ Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Óboðlegur sveigjanleiki Engin starfsemi hafin í „græna gímaldinu“ Kjötvinnsla staðfest í Álfabakka „Mistök“ að drög að harðorðri umsögn voru birt Telur ólíklegt að hætt verði við gerð göngustígsins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslendingarnir skutu liðinu í úrslitin „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Kosið er nú til kirkjuþings Hilmir Freyr nýr Íslandsmeistari í skák Dramatískur sigur Benonýs og félaga í umspilinu Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26: oddvitar í Árborg mætast Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Rubio: „Það er óásættanlegt“ Engin úrræði og engin ábyrgð Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Einkunnirnar ekki til hjá borginni Naumur eyðslutími Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Nýjast á mbl.is » Íslendingarnir skutu liðinu í úrslitin „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Kosið er nú til kirkjuþings Hilmir Freyr nýr Íslandsmeistari í skák Dramatískur sigur Benonýs og félaga í umspilinu Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einkunnirnar ekki til hjá borginni Stúdentum greitt högg á ögurstundu Samþykkja þriggja daga vopnahlé Rubio: „Það er óásættanlegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Einkunnirnar ekki til hjá borginni Naumur eyðslutími Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Loka