Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kviknaði í bústað við Elliðavatn

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Kvikn­aði í bústað við Ell­iða­vatn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eldur kviknaði í bústað við Elliðavatn í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins skömmu fyrir átta logar eldur í gömlum, mannlausum bústað. Slökkviliðsmenn eru komnir á staðinn og sjá til þess að eldurinn breiðist ekki út. Slökkviliðsbílar. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin selur Topp­stöð­ina Borgarráð samþykkti í gær að selja Toppstöðina í Elliðaárdal. Kaupandinn greiðir 440 milljónir fyrir húsið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Barist um fram­tíð Fram­sókn­ar­flokks­ins Lilja Alfreðsdóttir er almennt talin sigurstranglegri í formannskjöri Framsóknarflokksins um helgina. Framsóknarmenn eru þó á því að slagurinn verði jafnari en útlit var fyrir. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Við­ur­kenn­ing að ein­hver standi á sviði og segir sögu sem þú tengir við Í sýningunni Þegar ég sé þig, sé ég mig er varpað ljósi á reynsluheim Íslendinga af blönduðum uppruna. Það geti verið einmanalegt að halda að maður sé einn um lífsreynslu og því gott að spegla sig við einhvern á sviði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvær lík­ams­árás­ir Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tveimur líkamsárásum á kvöld- og næturvaktinni. Minni háttar meiðsl hlutust af líkamsárás í Hafnarfirði og afgreiddi lögregla það mál á staðnum. Kona í annarlegu ástandi var handtekin í Grafarvogi eftir líkamsárás og hún flutt í fangaklefa. Tveir voru handteknir fyrir þjófnað úr verslun í Hafnarfirði og nokkrir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, akstur undir áhrifum eða fyrir að fara yfir á rauðu ljósi hér og þar á höfuðborgarsvæðinu. Hafnarfjörður. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að fimmt­án stiga frost Frostið verður í aðalhlutverki í veðrinu í dag en éljagangur verður norðantil og með suðausturströndinni. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL dagur 8: Dagur keppir í skíða­göngu Dagur Benediktsson keppir í 10 km skíðagöngu karla í dag. Keppnin er klukkan 10:50 í beinni útsendingu á RÚV. Alls eru fimm medalíuviðburðir á dagskrá í dag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Long vonast eftir öðru tæki­færi hjá Ís­lend­ing­um William Long, sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, baðst afsökunar á ummælum sínum um Ísland þegar hann kom fyrir öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Fyrsta lithíum­námu­vinnsla sinnar teg­und­ar í Evrópu tekin í notkun Námufyrirtækið Keliber sprengdi formlega fyrstu sprenginguna Syväjärvi-námunni í Vestur- Finnlandi í gær. Mikil eftirspurn er eftir lithium á heimsvísu og er framleiðslunni ætlað að draga úr þörf á innflutningi frá Kína. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Madagaskar 38 fórust í felli­byl og sex er saknað Fellibylurinn Gezani olli gríðarlegri eyðileggingu í borginni Toamasina á Madagaskar á þriðjudaginn. Að minnsta kosti 38 fórust, sex manns er saknað og 374 eru slasaðir. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Vís­bend­ing­ar eru um gervi­verk­töku í ferða­þjón­ustu Eftirlitsátak Vinnustaðaeftirlits ASÍ leiddi í ljós að nokkuð er um gerviverktöku í ferðaþjónustunni. Þá sinntu kínverskir fararstjórar í sumum tilvikum verkefnum leiðsögumanna án þess að hafa tilskilin atvinnuréttindi hér á landi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bangladess Stefn­ir í sigur Þjóð­ar­flokks Bangla­dess í kosn­ing­un­um Brynja Dögg Friðriksdóttir Talning atkvæða er hafin í þessum fjölmennustu kosningum í heiminum. AP / Mahmud Hossain Opu Sjónvarpsstöðvar í Bangladess spá Þjóðarflokki Bandadess, yfirgnæfandi sigri í kosningum sem fóru fram í landinu í gær, en úrslitin hafa ekki enn verið tilkynnt formlega. Þjóðarflokkur Bangladess, er hægra megin við miðju og mældist fylgi hans mest í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar. 150 þingsæti þarf til að ná meirihluta á þingi, og sjónvarpsstöðvarnar Jamuna og Somaoy greindu frá því að flokkurinn væri nú þegar búinn að tryggja sér 197 sæti. Kosningarnar í Bangladess eru fjölmennustu kosningar í heiminum, en 120 milljónir manna eru á kjörskrá. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Albanía Leik­kona stefn­ir al­banska ríkinu fyrir að stela and­lit­inu sínu Albanska gervigreindarspjallmennið Diella var kynnt til sögunnar í september á síðasta ári. Nú hefur leikkonan sem spjallmennið byggir á kært albanska ríkið fyrir að stela persónueinkennum sínum. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti KR á mik­illi sigl­ingu Jóhann Páll Ástvaldsson Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Rúv / Mummi Lú KR hefur nú unnið átta leiki í röð í efstu deild karla í körfubolta. Liðið vann Álftanes 87-80 í kvöld er nú í 6. sæti með 20 stig en Álftanes er í 8. sæti með 14 stig. KR gaf í undir lokin eftir nokkuð jafnan leik. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fór fyrir KR-ingum með 19 stig, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Þá unnu Valsmenn 17 stiga sigur gegn botnliði ÍA. Valur er með 22 stig í fjórða sæti en nýliðar ÍA verma botnsætið með sex stig.. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Sterk­ur loka­kafli hjá FH í fyrsta leik Arons sem þjálf­ari Jóhann Páll Ástvaldsson Aron í leik með FH á síðasta tímabili. RÚV / Mummi Lú Aron Pálmarsson var á hliðarlínunni í fyrsta leik sínum í þjálfarateymi FH í efstu deild karla í handbolta í kvöld. Liðsmenn FH unnu endurkomusigur gegn Selfoss en liðið vann lokakaflann með fimm mörkum og að lokum þriggja marka sigur, 33-30. Selfyssingar leiddu 27-25 þegar skammt var eftir en þá gáfu FH-ingar í. FH er í öðru sæti deildarinnar en Selfoss í áttunda sæti. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Banda­rík­in draga úr hömlum á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda Kvaðir er varða losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum í Bandaríkjunum hafa verið felldar niður. Vísindaleg niðurstaða sem var notuð til grundvallar regluverki um losunina hefur verið afturkölluð. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Sjóvá skilar ríf­lega helm­ingi minni hagn­aði Hagnaður tryggingafélagsins Sjóvá af fjárfestingarstarfsemi var töluvert lægri árið 2025 en árið á undan. Forstjóri félagsins segir minni tekjuvöxt skýrast bæði af aukinni samkeppni og minni aukningu í umsvifum viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Lands­rétt­ur stað­festi átta ára dóm í met­am­fet­am­ín­mál­inu Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sexmenningum sem ákærð voru fyrir að flytja til landsins 5,8 kíló af metamfetamínkristöllum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tókust á um ein­ok­un áfeng­is­sölu Lára G. Sigurðardóttir og Elías Blöndal Guðjónsson hafa skipst á skoðunum um áfengi og lýðheilsu undanfarna daga. Þau voru gestir í Kastljósi í kvöld og ræddu aðgengi að áfengi og áhrif þess á samfélagið. 12. febrúar 2026 kl. 21:15INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Sam­an­lagð­ur hagn­að­ur bank­anna þriggja nærri 94 millj­arð­ar króna Samanlagður hagnaður bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, var nærri 94 milljarðar króna í fyrra. Fjármálaráðherra vill sjá harðari samkeppni svo eitthvað af hagnaðinum skili sér til neytenda. 12. febrúar 2026 kl. 20:58ÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Brotn­aði hrotta­lega fyrir 10 mán­uð­um en skil­aði gulli Hin ítalska Federica Brignona vann til gullverðlauna í risasvigi á Vetrarólympíuleikunum. Hún mölbraut löppina og sleit krossband í apríl 2025 en náði undraverðum bata. Þetta eru hennar fyrstu gullverðlaun á fimmtu Ólympíuleikum hennar. 12. febrúar 2026 kl. 20:26INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Sví­þjóð sér í fyrsta sinn um loft­rým­is­gæslu á Ís­landi Sænski flugherinn sinnir nú í fyrsta sinn loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Markmiðið er að tryggja viðbúnað og eftirlit í íslenskri lofthelgi. 12. febrúar 2026 kl. 20:00MENNING OG DÆGURMÁL Leikhúsgagnrýni Garð­ur­inn - Para­dís­ar­fugl­ar: Minna á hve mik­il­væg heil­brigð tengsl eru öllu lífi Trausti Ólafsson, leikhúsgagnrýnandi Víðsjár á Rás 1, rýnir í sýningu Íslenska dansflokksins Garðinn og dansmyndina Paradísarfugla sem sýnd eru saman á stóra sviðinu í Borgarleikhússinu. 12. febrúar 2026 kl. 19:53INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Væri búið að loka ef þetta væri ekki bráða­mót­taka Ef um væri að ræða einhverja aðra starfsemi, þá væri búið að loka henni segir forstjóri Landspítala um ástandið á bráðamóttöku. Rætt hefur verið um að gera hlé á stórum hluta skurðaðgerða til að búa til legurými. 12. febrúar 2026 kl. 19:26INNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Berj­ast við nátt­úru­öfl­in í Reyn­is­fjöru Landeigendur í Reynisfjöru freista þess að verja viðvörunarskiltin í fjörunni, en vegna landrofs og sjávargangs var byrjað að grafa undan þeim og hætta á að þau hryndu. 12. febrúar 2026 kl. 18:29INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Leggja til 12,6 millj­arða arð­greiðslu Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. 12. febrúar 2026 kl. 18:17ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Vill sjá NATO 3.0 Evrópa verður að sjá um sig sjálf og Atlantahafsbandalagið að snúa sér að upphaflegum tilgangi segir harðlínumaður og höfundur nýrrar varnarstefnu Bandaríkjanna. 12. febrúar 2026 kl. 18:10INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlk­an fundin heil á húfi Rebekka Líf Ingadóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir stúlku í kvöld sem er fundin heil á húfi. Því hafa allar persónugreinanlegar upplýsingar verið fjarlægðar úr þessari frétt. 12. febrúar 2026 kl. 17:54ÍÞRÓTTIR Fótbolti Ljóst hverj­um Ísland mætir í Þjóða­deild Í dag var dregið í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta en karlalandsliðið leikur í C-deild. Ísland mætir Búlgaríu, Eistlandi og annaðhvort Lúxemborg eða Möltu. 12. febrúar 2026 kl. 17:52INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er svo galið ástand“ Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir fólk liggja upp un

Share this article