Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.2.2026 | 22:21 Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Björn Pétursson hefur gengið sama hring frá 2014 og hefur alla tíð verið heilsuhraustur. Ljósmynd/Pétur Ragnar Pétursson Það er aldrei of seint að huga að líkamsrækt. Þegar Björn Pétursson hætti að vinna 66 ára gamall árið 2014 byrjaði hann að ganga sér til heilsubótar reglulega tvisvar á dag og hefur ekki misst úr dag. „Um áramótin hafði ég gengið um 50.000 kílómetra samtals eða rúmlega 4.000 kílómetra á ári,“ segir hann, en hver ganga og heilsufar eru færð samviskusamlega til bókar daglega. „Allar upplýsingarnar eru í tölvunni.“ Björn ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík og lagði aldrei stund á íþróttir. „Ég var mest að leika mér í hverfinu, var á flandri inni í Elliðaárvogi og víðar,“ rifjar hann upp. „Ég þvældist um allt.“ Ebenezer Þ. Ásgeirsson opnaði Vörumarkaðinn í Ármúla 1968 og hóf Björn þegar störf hjá honum. Eftir tæplega þrjá áratugi lá leiðin á lagerinn í Hagkaupum á Eiðistorgi, þar sem hann vann í um 20 ár. „Ég var aldrei í íþróttum og byrjaði ekki í þessari heilsurækt fyrr en fyrir um 12 árum,“ áréttar hann. Björn segist hafa hætt að vinna ári áður en hann fór á eftirlaun. „Ég átti séreignarsparnað og lifði á honum í eitt ár. Kom þannig í veg fyrir að verða tvískattaður.“ Með skipulagið á hreinu Skipulagið er fyrir öllu hjá Birni og hann vaknar alltaf á milli klukkan sjö og átta á morgnana. „Tíminn hefur verið fastur í heilabúinu frá því ég byrjaði að vinna.“ Yfirleitt fer hann einnig að sofa á svipuðum tíma á hverju kvöldi en þó eru á því undantekningar. „Það fer eftir því hvað er í sjónvarpinu en yfirleitt er ég sofnaður fyrir miðnætti.“ Tveir menn hafa iðulega gengið með Birni á morgnana og Magnús bróðir hans hefur gjarnan farið með honum síðdegis undanfarin ár. „Við leggjum af stað klukkan tíu og göngum yfirleitt sama hringinn um Barðastaðahverfið við Korpúlfsstaði, en svo förum við annan hring seinnipartinn.“ Gangan á morgnana tekur rúman klukkutíma en bræðurnir fara síðan styttri leið eftir hádegi. „Þetta er hressandi og frekar algengt í hverfinu.“ Tímasetning seinni göngu dagsins er lausari í reipunum. „Hún fer eftir því hvað við erum að gera hverju sinni. Einn bróðir okkar á heima í Keflavík og ef við förum og heimsækjum hann bíður gangan þar til við komum aftur. Við sleppum aldrei úr degi þó komið sé kvöld.“ Vetrarveðrið hefur engin áhrif á göngugarpana. „Það má alltaf hlaða utan á sig fötum. Við eigum góðan ullarfatnað og hann kemur sér vel í frostinu og vindinum. Við pössum upp á að láta okkur ekki verða kalt.“ Veikindi þekkir Björn ekki af eigin raun, hefur alla tíð verið heilsuhraustur og gætir þess að smitast ekki af umgangspestum. „Ég hef nánast aldrei talað við lækni á ævinni.“ Björn er ómannblendinn og segir það helstu ástæðuna fyrir því að hann hafi byrjað að ganga einn. „Ég er ekki mikil félagsvera og kann best við að vera í einmenningshlutum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn „Þú drapst stóra bróður minn“ Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Prófa einfaldari leið til að greina alzheimers Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Íslendingar hvattir til að huga að heimför Milljarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Vilja bílhræin burt af lóðinni Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins Stúlkan fundin heil á húfi „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn „Þú drapst stóra bróður minn“ Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Prófa einfaldari leið til að greina alzheimers Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Framkvæmdir gætu kostað milljarða Nýtt merki undir Tenerife: Vísindaráð kallað saman Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins Stúlkan fundin heil á húfi „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article