Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þorleifur hættur að þjálfa Grindavík

Read Full Article →

Þorleifur Ólafsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta. Hann tilkynnti þetta í viðtali við Sýn eftir tap liðsins gegn Njarðvík í oddaleik undanúrslita í gærkvöldi. Grindavík vann fyrstu tvo leikina gegn Njarðvík en tapaði næstu þremur og féll úr keppni. „Ég verð ekki með liðið á næsta ári. Þetta er held ég komið gott. Það er nóg af öðrum hlutum sem ég þarf að einbeita mér að. Komið gott fyrir mig að vera kvennaþjálfari í Grindavík og kominn tími til að fá nýtt blóð inn,“ sagði hann við Sýn. Þorleifur tók við Grindavík 2021 eftir að hafa verið fyrirliði karlaliðs félagsins um árabil. Þorleifur ÓlafssonMummi Lú

Share this article