Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.5.2026 | 13:00 Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Björn segir ástandið ekkert hafa breyst og segir mikil vonbrigði að það sé eins og menntamálayfirvöld misskilji vandamálið. mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Versnar með hverju ári að óbreyttu Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður » Fleiri tengdar fréttir Nemendur eru enn þann dag í dag teknir inn í framhaldsskóla hér á landi á grundvelli ósambærilegra skólaeinkunna, sem byggja meðal annars á ástundun, hegðun, heimavinnu og öðru. Þetta segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, en Viðskiptaráð hefur lengi talað um einkunnaverðbólgu hér á landi, sér í lagi eftir að samræmd próf voru lögð af. Hefur Viðskiptaráð reynt að hafa áhrif á bæði ráðamenn og skólasamfélagið en ekki haft erindi sem erfiði. Björn rifjar upp í samtali við mbl.is að eftir að samræmdu prófin voru lögð af þá hafi einkunnaverðbólga farið af stað í grunnskólunum og einkunnir sífellt farið hækkandi. Þá hafi verið ákveðið að skipta yfir í bókstafakerfi en það hafi ekki stöðvað einkunnaverðbólguna. Þannig skapaðist misræmi á milli nemenda úr mismunandi skólum sem þó eru með upp á vasann sömu einkunnir. Frétt af mbl.is Óljóst og óáreiðanlegt: „Alveg á floti“ Samrýmist ekki jafnræðisreglu „Þá eru nemendur ekki að fá rétt mat á færni sinni í grunnskólakerfinu og ekki heldur að fá rétt tækifæri til frekara náms. Það er eitthvað sem við teljum ekki samrýmast jafnræðisreglu þar sem að það er skólaskylda og höfum bent stjórnvöldum á að tryggja nemendum jafnræði,“ segir Björn en Viðskiptaráð fékk meðal annars lögfræðiálit frá Juris þess efnis sem hefur verið birt og kallað eftir úrbótum. Björn segir að síðan hafi verið rætt mikið um svokallaðan matsferil sem hann segir ekki laga vandamálið. „Það er ekkert próf við lok grunnskólagöngu þannig að það er ekkert samræmt mat á færni nemenda þegar þeir ljúka henni og þeir hvorki meðvitaðir um raunstöðu sína né njóta jafnra tækifæra til framhaldsnáms þegar þeir ljúka grunnskóla.“ Matsferillinn er ekki það tæki sem mun leysa þau vandamál sem bent hefur verið á að mati Viðskiptaráðs. Ýmislegt athugavert er við aðferðafræði hans. Hægt er að taka prófin á mismunandi tímum í ólíkum skólum og heimilt er að endurnýta spurningar ár frá ári. Frétt af mbl.is Versnar með hverju ári að óbreyttu „Þetta er ekki fullnægjandi aðferðafræði til að tryggja samræmt mat á færni barna,“ segir Björn og bætir því þar að auki við að ekki komi einkunnir út úr slíku mati í hefðbundnum skilningi heldur svokallaðar raðtölur. „Einu einkunnirnar á matsferli eru hlutfallslegar eða hvar nemandi stendur hlutfallslega miðað við aðra í sínum árgangi. Þá er ekki hægt að bera saman færni nemenda yfir tíma, þ.e.a.s. ef árangur í grunnskólakerfinu er að fara niður eða upp þá mælist það ekki í matsferlinu. Frétt af mbl.is Reiknar í laumi einkunnir eftir gamla kerfinu Mælir færni ekki með samræmdum hætti Björn segir að fyrir rúmum fimm árum hafi talnaeinkunnakvarðanum verið skipt út fyrir bókstafaeinkunnakvarða og ein af ástæðunum hafi verið síhækkandi meðaleinkunnir. „Þessi breyting virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri þar sem einkunnir hækka enn.“ Þannig segir Björn ástandið ekkert hafa breyst og segir mikil vonbrigði að það sé eins og menntamálayfirvöld misskilji vandamálið. Matsferill sé hugsaður að þeirra sögn sem innra tæki í skólastarfi sem Viðskiptaráð gerir enga athugasemd við. „Það sem við erum að benda á er að matsferillinn leysir ekki vanda grunnskólanna þegar kemur að mælingum vegna þess að hann mælir ekki með samræmdum hætti færni nemenda við lok grunnskólagöngu.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Versnar með hverju ári að óbreyttu Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Jökull fékk veglega gjöf frá stjörnu United Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Ekki gaman að vera ég núna Only possible to sail to Landeyjahöfn in ideal conditions Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byrja að sekta fyrir nagladekkin um helgina Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Hafna fyrirspurn og gestakomum Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Nýjast á mbl.is » Jökull fékk veglega gjöf frá stjörnu United Íran hættir við þátttöku í Feneyjatvíæringnum Ekki gaman að vera ég núna Only possible to sail to Landeyjahöfn in ideal conditions Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26 – Oddvitar í Mosó mætast Ökumaðurinn glímdi við geðræn vandamál Strangar varúðarráðstafanir um borð í skipinu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu

Share this article