Innlent | mbl | 5.5.2026 | 11:55 Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Ljóst er að á þeim tíma sem félagið PJ Verk starfaði hafi bæði verið millifærðar af bankareikningi þess verulegar fjárhæðir til varnaraðila, eða sem nemur 5.979.585 krónum. Þessu til viðbótar hafi reikningur félagsins verið notaður til að greiða ýmsan einkakostnað varnaraðila sem samkvæmt samantekt sóknaraðila nema samtals 12.348.821 krónu, að því er segir í úrskurði héraðsdóms. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað mann til að sæta atvinnurekstrarbanni í tvö ár. Skiptastjóri þrotabús PJ Verks höfðaði málið á hendur manninum sem var tekið til úrskurðar í apríl. PJ Verk var stofnað í mars 2021 og var maðurinn eini stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins frá stofnun þess og fram til þess tíma er félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt vottorði úr fyrirtækjaskrá var tilgangur þess „almenn verktakastarfsemi, kaup og sala fastafjármuna ásamt almennum fjárfestingum“. Segir héraðsdómur að félagið hafi kerfisbundið verið tæmt með ráðstöfun á fjármunum félagsins í þágu mannsins sjálfs. Vísað aftur heim í hérað Fram kemur í úrskurði héraðsdóms, sem féll 30. apríl, að með úrskurði Landsréttar 9. febrúar 2026 hafi úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. október 2025 og meðferð málsins frá og með þinghaldi 27. maí 2025 verið ómerkt og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Taldi Landsréttur m.a. ljóst að framlagning bókhaldsgagna, mappa með 200 fylgiskjölum, sem lögð voru fram við meðferð málsins fyrir Landsrétti, hefði breytt eðli málsins í veigamiklum atriðum og hefði óhjákvæmilega áhrif við mat á því hvort viðskiptahættir sóknaraðila við stjórnun félagsins hefðu verið skaðlegir eða óverjandi. Taldi Landsréttur að gefa yrði manninum tækifæri til andmæla og viðbragða vegna umræddra gagna. Þá væri ekki loku fyrir það skotið að gögnin gætu haft áhrif á efni aðilaskýrslu mannsins í héraði og eftir atvikum gefið honum tilefni til frekari sönnunarfærslu þar fyrir dómi. Verulegar fjárhæðir millifærðar Fram kemur í niðurstöðu héraðsdóms að ljóst sé að á þeim tíma sem félagið PJ Verk starfaði hafi bæði verið millifærðar af bankareikningi þess verulegar fjárhæðir til mannsins, eða sem nemur 5.979.585 krónum. Þessu til viðbótar hafi reikningur félagsins verið notaður til að greiða ýmsan einkakostnað varnaraðila sem samkvæmt samantekt sóknaraðila nemi samtals 12.348.821 krónu. Þannig kemur fram á bankayfirliti félagsins að félagið hafi greitt kostnað vegna kaupa á veitingum, ýmiss konar afþreyingu, fyrir hótelgistingu og ferðakostnað varnaraðila. Engar viðhlítandi skýringar hafa verið gefnar á því af hálfu mannsins með hvaða hætti útgjöldin hafi nýst í þágu félagsins, auk þess sem reikningar liggja ekki fyrir í bókhaldsgögnum fyrir umræddum greiðslum nema að takmörkuðu leyti. Þá sé engar upplýsingar að finna um þá viðskiptamenn og fyrirtæki sem maðurinn átti fundi með í utanferðum sínum, að því er segir í niðurstöðukaflanum. Í skýrslu mannsins fyrir dómi kvaðst hann ekki geta upplýst nákvæmlega hvaða viðskiptaaðila hann hitti í utanferðunum en hann hafi verið að kaupa timbur og innréttingar í París og hafi þurft að hitta viðskiptamenn í Litháen. Hann kvaðst ekki geta nafngreint þá vegna þess að þegar félagið hefði farið í þrot hefði hann ekki lengur verið í sambandi við þá einstaklinga. Hann geti því ekki munað hverjir það voru. Engar viðhlítandi skýringar gefnar Þá hafa engar viðhlítandi skýringar verið gefnar eða lögð fram gögn af hálfu varnaraðila sem varpað geta ljósi á úttektir af bankareikningi félagsins í Landsbankanum að fjárhæð 1.736.000 krónur hinn 2. júní 2022. Það er niðurstaða héraðsdóms að félagið hafi kerfisbundið verið tæmt með ráðstöfun á fjármunum félagsins í þágu mannsins sjálfs, með tilheyrandi tjóni fyrir kröfuhafa og samfélagið. Manninum var því gert að sæta atvinnurekstrarbanni í tvö ár. Manninum var enn fremur gert að greiða 1,3 milljónir króna í ríkissjóð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Myndskeið: Móðir réðst á 13 ára leikmann Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar Versnar með hverju ári að óbreyttu Stunda tannsmíði og þjálfun á daginn en Kyrrð Matcha á kvöldin Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Versnar með hverju ári að óbreyttu „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Bandarísk herskip komin í Persaflóa Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Hafna fyrirspurn og gestakomum Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Myndskeið: Móðir réðst á 13 ára leikmann Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar Versnar með hverju ári að óbreyttu Stunda tannsmíði og þjálfun á daginn en Kyrrð Matcha á kvöldin Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Versnar með hverju ári að óbreyttu Allt stefnir í skelfileg úrslit Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Enn eitt dæmi um gullhúðun Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Hafna fyrirspurn og gestakomum Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“