Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögregla birtir nafn grunaðrar eftir mannskæða skotárás í Kanada

  • What: A shooting in Tumbler Ridge, Canada, resulted in nine deaths and 25 injuries at a school and a home.
  • Impact: The incident is one of the deadliest shootings in Canadian history.
Read Full Article →

Kanadíska lögreglan birti í dag nafn þeirrar sem grunuð er um að hafa drepið níu og sært um 25 manns í tveimur skotárásum í skóla og heimahúsi í kanadíska smábænum Tumbler Ridge í gær. Grunaða er hin átján ára Jesse Van Rootselaar, en hún svipti sig lífi á fannst látin á vettvangi. Kanadíska lögreglan segist enn hvorki vita um tildrög né ástæðu árásarinnar en á síðustu árum hafi hún haft afskipti af Rootselaar vegna andlegrar heilsu hennar. Meðal hinna látnu er fullorðin kona sem starfaði sem kennari við gagnfræðaskólann, þrjár stúlkur og tveir drengir sem voru á aldrinum 13 til 17 ára. Níu voru drepin og 27 særðust í skotárás í kanadískum smábæ í gær. Hin 18 ára Jesse Van Rootselaar liggur undir grun en hún svipti sig lífi á vettvangi. Skotárásin er ein sú mannskæðasta í sögu Kanada. Í heimahúsi í nágrenni skólans fundust lík tveggja annarra einstaklinga en lögregla segir að þau hafi verið móðir og stjúpbróðir hinnar grunuðu. Tumbler Ridge er um tvö þúsund og fjögur hundruð manna smábær um 1.100 kílómetra norður af Vancouver. Atburðirnir í gær eru meðal mannskæðustu skotárása í sögu Kanada þar sem skotárásir eru sjaldgæfar.

Share this article