- What: Póló was fined for violating advertising regulations
- Impact: The company was penalized for misleading advertising related to nicotine products
Neytendastofa hefur sektað Pólóborg ehf., rekstraraðila verslana Póló, um 600.000 krónur fyrir brot gegn auglýsingabanni á nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu. Þar segir að Póló hafi brotið gegn ákvörðun nr. 38/2024 með birtingu myndbands og mynda á Instagram-síðu verslunarinnar í nóvember og desember 2025 þar sem auglýst var svokallað „nikótínpúðajóladagatal“. Í ákvörðun Neytendastofu segir jafnframt að félagið hafi birt lénið rafrettur.is á stóru auglýsingaskilti framan á verslun sinni á Bústaðavegi og þar með brotið gegn ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga nr. 87/2018, um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Pólóborg svaraði Neytendastofu í janúar á þessu ári og tók fram að lénið rafrettur.is væri logo, rétt eins og Polo væri logo, og spurði hver munurinn væri á því að auglýsa eitt vörumerki fram yfir annað. „Neytendastofa hafi komist að þeirri niðurstöðu að birting og auglýsing á léninu fæli í sér brot gegn ákvæðinu enda væri um auglýsingu á rafrettum að ræða. Neytendastofu barst svar félagsins með tölvupósti. Þar kom fram að þetta væri ekki í lagi og að þarna hefði verið farið verulega fram úr sér og beðist væri afsökunar á þessu. Þetta hefði verið gert án vitundar forsvarsmanns félagsins og myndi ekki gerast aftur.“