Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lufthansa ekki að fækka ferðum til Íslands

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Luft­hansa ekki að fækka ferðum til Ís­lands Hugrún Hannesdóttir Diego Ákvörðun þýska flugfélagsins Lufthansa hefur að öllum líkindum ekki áhrif á flugferðir þess til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi Isavia. Lufthansa tilkynnti í gær að 20.000 flugferðum yrði aflýst fram í október vegna hækkandi verðs á flugvélaeldsneyti. Flugfélagið gerir ráð fyrir að með þessu sparist um 40.000 tonn af flugvélaeldsneyti. Ákvörðunin hefur einna helst áhrif á styttri ferðir. EPA / Christopher Neundorf Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hval­veiði­ráð­gjöf lækkuð um fimmt­ung Hvalur hefur ekki verið veiddur við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Hafrannsóknarstofnun ráðleggur að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar á komandi tímabili. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hamp­iðj­an reisir verk­smiðj­ur á Ind­landi Byggingu tveggja 28 þúsund fermetra verksmiðjuhúsa Hampiðjunnar á Indlandi á að ljúka síðar í sumar. Þar munu um 750 manns koma til með að vinna þegar starfsemin verður komin á fullt skrið. Fyrir 48 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Land­helg­is­gæsl­an sótti slas­að­an sjó­mann 185 sjó­míl­ur suð­vest­ur af land­inu Landhelgisgæslan sótti í morgun slasaðan sjómann af spænsku fiskiskipi. Skipið var staðsett utan íslenskrar lögsögu þegar kallið barst síðdegis í gær. Því var beint í átt til Íslands og önnuðust þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar björgunaraðgerðir. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Olía rennur um Dru­zhba-leiðsl­una og lán ESB til Úkra­ínu sam­þykkt Björn Malmquist Móttökustöð fyrir olíu í Ungverjalandi, þar sem olía um Druzhba leiðsluna kemur á áfangastað. MTI / EPA Olía frá Rússlandi er farin að renna um Druzhba olíuleiðsluna sem liggur um Úkraínu til Ungverjalands og Slóvaíku, sögðu embættismenn í þessum ríkjum í morgun. Olíuflutningar um leiðsluna stöðvuðust snemma á þessu ári, og stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að ástæðan hafi verið loftárásir Rússa á dælustöð sem tengist leiðslunni. Um svipað leyti í morgun varð ljóst að andstaða Ungverja og Slóvaíku við afgreiðslu á 90 milljarða evra láni Evrópusambandsins til Úkraínu væri ekki lengur fyrir hendi. Það kom í ljós á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna í Brussel í morgun, þar sem tillagan um lánið var samþykkt, sem og refsiaðgerðir ESB gegn Rússum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Maður hand­tek­inn vegna hótana í Bor­länge Hallgrímur Indriðason Hættan á skotárás í skóla í Borlänge er liðin hjá. Lögreglan tilkynnti að búið væri að handtaka mann vegna hótana um ofbeldi, sem varð til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Danil Fält upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins segir að skólarnir verði opnir eins og venjulega á morgun. Enn hefur ekki verið gefið upp hvers eðlileg hótunin er en Aftonbladet sagði frá því að hún hefði falið í sér skotárás á skóla. Lögreglubíll fyrir utan framhaldsskóla í Borlänge. Skjámynd / SVT Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Boða starfs­fólk á fund um hag­ræð­ing­ar­að­gerð­ir Stjórnendur innan Landspítalans segja aðhaldskröfu stjórnvalda kalla á mikið endurskipulag til að þjónusta skerðist ekki. Starfsmenn sjúkrahússins hafa verið boðaðir á fund þar sem ákvarðanir um hagræðingu verða kynntar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Þre­falt fleiri á móti þétt­ingu en hlynnt­ir henni Fólk í úthverfum er andvígara þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu en fólk í miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur. Fólk sem gengur, hjólar og tekur strætó er hlynntara þéttingu en það sem ferðast á bíl. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Upp­bygg­ing varn­ar­garða á Reykja­nes­skaga var Rík­is­lög­reglu­stjóra ofviða Ríkisendurskoðun gagnrýnir óskýra verkaskiptingu, skort á eftirliti með kostnaði og hvernig staðið var að ákvarðanatöku við uppbyggingu varnargarða á Reykjanesi í stjórnsýsluúttekt. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fleiri telja efna­hags­stöð­una á Ís­landi slæma en góða Fólk sem er komið yfir sextugt telur efnahagsstöðuna á réttu róli en ekki þau sem yngri eru. Fólk með yfir tvær milljónir í heimilistekjur á mánuði lítur ástandið bjartari augum en aðrir tekjuhópar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar ráðast á þrjú flutn­inga­skip á Hormúss­undi Írana skutu á gámaskip undan ströndum Óman og skemmdu það. Breskt öryggisfyrirtæki segir íranska byltingarvörðinn hafa gert árásina eftir að skipið fékk leyfi til að fara í gegnum Hormússund. Tvö skip til viðbótar hafa orðið fyrir árás. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Leita er­lends ferða­manns í grennd við Háa­foss Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni í gær eftir að hann skilaði sér ekki á gististað. Leit verður framhaldið í dag. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Fella niður skóla­hald eftir hótun um skot­árás Hótun um skotárás í skóla í bænum Borlänge í Svíþjóð var gerð í nótt. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu sem segir of snemmt að segja til um hvort alvara búi að baki hótuninni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Þurfa að meta stöðu inn­viða og end­ur­skoða við­bragðs­áætl­an­ir í Hafn­ar­firði Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fagnar því að áhættumat Veðurstofunnar á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu liggi fyrir. Skoða þurfi uppbyggingaráform og tryggja öryggi íbúa og innviða út frá matinu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Katar Afgansk­ir flótta­menn hugs­an­lega flutt­ir til Kongó eða heima­lands­ins Bandaríkjastjórn hyggst leggja niður búðir í Katar sem hýsa yfir 1.100 Afgana sem bíða þess að fá landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Fólkið verður hugsanlega sent til Kongó eða Afganistan. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Fjöldi íbúða til sölu í sögu­leg­um hæðum Íbúðum á sölu hefur fjölgað um rúmlega 1.800 undanfarið ár. Níu af hverjum tíu fasteignasölum telja virkni litla á fasteignamarkaði miðað við árstíma og meirihluti þeirra telur verð þokast niður á við. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Stelp­ur úr MS bjuggu til heilsu­drykk út frá þörfum Ís­lend­inga Vörumessa ungra frumkvöðla var haldin í Smáralind um helgina þar sem 620 nemendur frá átján framhaldsskólum kynntu og seldu nýsköpun sína. Þar á meðal voru fjórar stelpur úr Menntaskólanum við Sund með heilsudrykkinn sinn Blæ. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægir vindar alls­ráð­andi næstu daga Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig í dag en nálægt frostmarki í nótt. Víða verður hæg vestlæg eða breytileg átt en suðvestan 8 til 15 metrar á sekúndu norðvestantil. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Kórea Hakk­ara­hóp­ur grun­að­ur um að hafa framið stærsta rán ársins á raf­mynt­um Norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að ræna milljörðum í rafmyntum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hópurinn fremur svo stórt rafmyntarán. Rafmyntirnar eru notaðar til að fjármagna þróun kjarnorkuvopna. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­elar og Líb­an­ar funda á fimmtu­dag Tíu daga vopnahlé milli Ísraela og Líbana tók gildi á föstudaginn. Fulltrúar þjóðanna funda á fimmtudaginn. Hezbollah-samtökin hafa ekki virt vopnahléið að fullu. Mannfall vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum er mest í Íran og Líbanon. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fangi tekinn af lífi í Flór­ída Chadwick Willacy var tekinn af lífi í ríkisfangelsinu í Raiford á Flórída í gær. Hann hlaut dauðadóm árið 1991 fyrir morð á nágranna sínum árið áður. Willacy er áttundi bandaríski fanginn sem tekinn er af lífi á þessu ári. 22. apríl 2026 kl. 2:15ERLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Luft­hansa af­lýs­ir 20.000 flug­ferð­um Hækkandi verð á flugvélaeldsneyti er sögð ástæðan. Einkum styttri flugferðum hefur verið aflýst en verið er að endurskoða flugáætlun fyrir miðlungs langar flugferðir. Lufthansa flýgur milli Frankfurt og Keflavíkur tíu sinnum í viku. 22. apríl 2026 kl. 1:10ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hern­að­ar­sér­fræð­ing­ar funda í London vegna Hormúss­unds Hernaðarsérfræðingarnir skipuleggja fjölþjóðlegt verkefni til að tryggja siglingar um Hormússund. Bretar og Frakkar stóðu fyrir alþjóðlegum viðræðum í síðustu viku um Hormússund, en hvorki Bandaríkjamenn né Íranar sendu fulltrúa til þeirra viðræðna. 22. apríl 2026 kl. 0:21ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Ef Chat­G­PT væri mann­eskja væri það að horfa fram á ákæru fyrir morð“ Flórída-ríki hefur opnað rannsókn á mögulegri aðild ChatGPT, eða OpenAI, að fjöldaskotárás í fyrra. Hinn tvítugi Phoenix Ikner er talinn hafa leitað ráða hjá spjallmenninu áður en hann réðst á saklausa samnemendur sína. 21. apríl 2026 kl. 23:41MENNING OG DÆGURMÁL Austurland Sumum þætti þrjár vikur langur tími að komast ekki í búð Sævar Egilsson tók við áætlunarferðum á milli Mjóafjarðar og Neskaupsstaðar yfir vetrarmánuðina af föður sínum. Ófært er landleiðina í um átta mánuði á ári. 21. apríl 2026 kl. 23:01INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Þórdís Kol­brún önnur eftir tíma sinn í ut­an­rík­is­ráðu­neyt­inu Þórdís Kolbrún, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og nýskipaður sendiherra, segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu hafa haft mikil áhrif á sig. Hún ræddi starfsbreytinguna í Kastljósi í kvöld. 21. apríl 2026 kl. 22:07INNLENDAR FRÉTTIR Almannavarnir Til skoð­un­ar að ráðast í fyr­ir­byggj­andi að­gerð­ir Veðurstofa Íslands gaf í dag út nýja skýrslu sem sýnir hvar gos geti hafist og hraun runnið. Yfirlögregluþjónn almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra segir núverandi viðbragðsáætlanir vegna eldgosa geta tekist á við ástandið á Reykjanesi. 21. apríl 2026 kl. 21:57INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Fisk­flutn­inga­bíll á hlið­inni á Þor­láks­hafn­ar­vegi Mist Þormóðsdóttir Grönvold Fiskflutningabíll valt á hliðina á Þorlákshafnarvegi um klukkan átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Pétri Péturssyni, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu, var einn í bílnum. Hann komst út úr honum af sjálfsdáðum og fékk aðhlynningu frá s

Share this article