Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi

This article describes a kinetic maritime security incident, not a software vulnerability. The threat involves Iranian Revolutionary Guard forces attacking commercial shipping vessels in the Strait of Hormuz using direct fire from small boats, damaging bridges and forcing ships to anchor. The attack vector is physical interdiction and weapon fire against three separate vessels under Greek, UAE, and Panamanian flags. No digital attack method, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds are discussed.
Read Full Article →

Skotið var á flutningaskip á Hormússundi, skammt undan ströndum Óman, snemma í morgun. United Kingdom Maritime Trade Operations, breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggi á sjó, greindi frá þessu. Í tilkynningu segir að skipstjórinn hafi tilkynnt að skip frá íranska byltingarverðinum hafi nálgast gámaskipið og síðan skotið á það. Brú skipsins skemmdist töluvert. Engan sakaði, enginn eldur kviknaði og engin umhverfisáhrif hafi orðið. Gámaskipið heitir Epaminondas og siglir undir grískum fána. og hafði samkvæmt tilkynningu breska fyrirtækisins fengið heimild til að sigla í gegnum Hormus-sund. Íranskir fjölmiðlar segja hins vegar að skipið hafi virt viðvaranir Írana að vettugi. Tvö skip til viðbótar tekin Þá var skotið á annað flutningaskip vestur af Íran og för þess stöðvuð. Það skip skemmdist ekki. Skipið er skráð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var á leið til Sádi-Arabíu. Íranar hafa staðfest að bera ábyrgð á þessari árás. Breska ríkisútvarpið, BBC, greindi svo frá þriðja skipinu sem Íranar hafa ráðist á. Það siglir undir fána Panama og var á leið úr sundinu að Óman. Skipstjórinn var þvingaður til að varpa akkerum. Smávægilegar skemmdir hafa orðið á skipinu. Tvö af þessum þremur skipum eru enn í haldi Írana. Árásin átti sér stað stuttu eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna framlengdi vopnahlé sem var í gildi í Íran og gaf þannig meiri tíma fyrir friðarviðræður. Þær hafa þó ekki enn farið í gang og óvíst er hvort þetta hafi einhver áhrif á það.

Share this article