Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hækka verð á smokkum um 20-30%

Read Full Article →

Malasíska fyrirtækið Karex, stærsti smokkaframleiðandi heims, hyggst hækka verð um 20-30% og jafnvel enn meira ef frekari röskun verður á aðfangakeðjum vegna stríðsins í Íran. Forstjóri Karex, Goh Miah Kiat, segir í viðtali við Reuters að eftirspurn hafi aukist um ríflega 30% í ár þar sem hækkandi flutningskostnaður og tafir í skipaflutningum hafa leitt til þess að birgðir margra viðskiptavina hafi dregist saman. Flutningar til Evrópu og Bandaríkjanna taki nú nærri tvo mánuði, samanborið við einn mánuð áður. „Ástandið er klárlega mjög viðkvæmt, verð er hátt… Við eigum ekki annarra kosta völ en að velta kostnaðinum yfir á viðskiptavini,“ sagði Goh. Karex framleiðir yfir 5 milljarða smokka á ári og er birgir fyrir leiðandi vörumerki á borð við Durex og Trojan, sem og opinber heilbrigðiskerfi, eins og NHS í Bretlandi, og alþjóðleg hjálparverkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Frá því að stríðsátök í Íran hófust í lok febrúar hefur ýmiss kostnaður í framleiðsluferli Karex, þar á meðal vegna gervigúmmís og nítríls, hækkað umtalsvert. Goh segir að Karex sé með nægar birgðar fyrir næstu mánuði og horfi til þess að auka framleiðslu til að anna aukinni eftirspurn. Smokkabirgðir á heimsvísu hafa dregist verulega saman á síðustu misserum vegna niðurskurðar í útgjöldum til þróunaraðstoð, sérstaklega hjá Bandarísku þróunarstofnuninni (USAID) á síðasta ári.

Share this article