Verð á bensíni og dísilolíu í Bretlandi hefur byrjað að lækka í fyrsta sinn frá því að átökin í Íran hófust í lok febrúar. Á vef BBC segir að lækkunin komi í kjölfar verðhækkana sem áttu sér stað eftir lokun á Hormússundinu. Dæluverð í Bretlandi byrjaði að lækka í gær og hélt áfram að lækka í dag. Breytingar hafa þó verið hóflegar en verð á dísilolíu lækkaði um tæpar tíu krónur og hefur verð á bensíni lækkað um tæpar fimm krónur. Lítraverðið á dísil í Bretlandi er nú um 314 krónur og kostar bensínlítrinn tæpar 260 krónur. Þrátt fyrir verðlækkanir hefur heildarkostnaður breskra ökumanna hækkað töluvert á árinu. Meðalkostnaður fyrir áfyllingu á dísilbíl er nú um 4.300 krónum dýrari en fyrir áramót og það kostar sömuleiðis 2.300 krónum meira að fylla á bensínbifreið. Sjá einnig Olíuverð lækkar eftir ummæli Trump Eldsneytisverð hefur einnig aukið álag á bresk heimili en samkvæmt bresku hagstofunni sögðu 75% svarenda í mars að eldsneytiskostnaður hefði aukið framfærslukostnað, samanborið við 38% í febrúar.