Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.4.2026 | 18:30 Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Pólskur pípulagningameistari lagði Félag íslenskra pípulagningameistara í Héraðsdómi. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi máli Félags pípulagningameistara gegn pólskum pípulagningameistara og íslenska ríkinu. Emilía G. Mikaelsdóttir, lögfræðingur pólska meistarans, segir aðgerðir félagsins gegn Pólverjanum jaðra við kerfisbundna áreitni. „Það er ekki bara svo að félagið stefndi honum heldur hefur það farið hamförum í kærum til lögreglu, stjórnvalda, hlöðnum yfirlýsingum til fjölmiðla og með því að senda kröfubréf hingað og þangað til þess að bregða fæti fyrir umbjóðanda minn. Það er dagljóst að við þetta verður ekki unað og er nú verið að skoða að ráðast í skaðabótamál gegn félaginu,“ segir Emelía. Stefndu röngum aðila Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, auk þess sem það stefndi röngum aðila með pólska pípulagningameistaranum, en það stefndi íslenska ríkinu en hefði átt að stefna sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Í ljósi þessa var málinu vísað frá dómi og Félag pípulagningameistara úrskurðað til þess að greiða allan málskostnað, samtals 1.120.000 krónur, þar af 620.000 krónur til pólska pípulagningameistarans og 500.000 krónur til ríkisins. Emilía segir að þessi leiðangur Félags pípulagningameistara virðist farinn út af einhvers konar hræðslu gagnvart menntun erlendra iðnaðarmanna, sem hefur haft í för með sér umtalsvert tjón, enda missti Pólverjinn af fjölda verkefna fyrir tilstuðlan hagsmunasamtakanna. Hún bætir við að í úrskurði héraðsdóms megi sjá að ekkert í málavöxtum gefi til kynna að þessar aðgerðir hafi átt sér lögmæta og faglega skýringu. „Félag pípulagningameistara hefur gert allt sem í þess valdi stóð til að koma í veg fyrir að umbjóðandi minn gæti starfað sem slíkur hér á landi. Félagið höfðaði dómsmál, kærði ákvörðun sýslumannsins til atvinnuvegaráðuneytisins, sem vísaði kærunni frá. Einnig var hann kærður til lögreglu með þeim tilhæfulausu ásökunum að hann starfaði sem meistari án tilskilins leyfis. Í kjölfarið þurfti umbjóðandi minn að mæta sem sakborningur í skýrslutöku hjá lögreglu og hefur þurft að sæta því að félagið reyni endurtekið og ítrekað að bregða fyrir hann fæti,“ segir Emelía. Úthýsa erlendum iðnaðarmönnum Emilía segir mynstrið nokkuð augljóst. „Félag pípulagningameistara hefur kerfisbundið áreitt strangheiðarlegan fagmann, sem uppfyllti öll skilyrði íslenskra laga til þess að öðlast meistaraviðurkenningu. Aðgerðirnar bera skýr merki þess að vera hugsaðar til að reyna á að úthýsa erlendum iðnaðarmönnum á íslenska markaðnum, sem leiði svo til tjóns fyrir íslenska neytendur. Eðlilegra hefði verið að mæta samkeppninni á markaðnum á faglegum grunni, en því hefur ekki verið að heilsa til þessa. Vonandi verður núna bót á,“ segir Emelía. Málið á sér langa forsögu. Pólski meistarinn hlaut leyfisbréf í pípulögnum hér á landi 1. mars 2019 og lauk meistaraprófi í Póllandi 4. október 2023. Hann sótti löglega um viðurkenningu á menntun sinni og hlaut meistarabréf í pípulögnum útgefið af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 10. júní 2024, að undangenginni umsögn ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofunnar sem staðfesti að nám hans uppfyllti íslenskar kröfur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fór á kostum í Svíþjóð Umferð á höfuðborgarsvæðinu dregist töluvert saman Lærisveinar Guðjóns nálgast Meistaradeildarsæti Halla ræddi um velsæld á tímum gervigreindar Freiburg flaug í undanúrslitin Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Óábyrgt að fara að lofa einhverju Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Fór á kostum í Svíþjóð Umferð á höfuðborgarsvæðinu dregist töluvert saman Lærisveinar Guðjóns nálgast Meistaradeildarsæti Halla ræddi um velsæld á tímum gervigreindar Freiburg flaug í undanúrslitin Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinsælum veitingastöðum lokað Hækkar byggingarkostnað Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Bændur með harða gagnrýni Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article