Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hafa ekki náð að rannsaka síma Quang Le eftir tveggja ára rannsókn

Read Full Article →

Landsréttur staðfesti í fyrradag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Quang Lé og kona hans sæti farbanni til 3. júlí. Bæði eru þau grunuð um aðild að einhverju stærsta mansalsmáli Íslandssögunnar. Dómari féllst á að raunveruleg hætta væri á því að hjónin legðu á flótta undan réttvísinni ef þau sættu ekki farbanni. Vísað var til þess að konan á fjölskyldu erlendis og maðurinn dóttur. Sér fyrir endann á rannsókninni Lögregla réðist til atlögu og gerði húsleit á fjölda veitingahúsa og annarra staða sem Quang Lé og eiginkona hans tengjast 5. mars 2024. Rannsóknin hefur staðið yfir síðan þá en er á lokametrunum samkvæmt gögnum sem lögregla lagði fyrir dómstóla með beiðni sinni um framlengingu á gæsluvarðhaldi. Lögregla segir að nú sjái fyrir endann á rannsókninni. Lögreglu hefur enn ekki tekist að afrita og rannsaka síma Quang Lé þrátt fyrir að rúmlega tvö ár séu síðan rannsókn hófst. Lögregla segir að þau lykilorð sem Quang Lé hefur gefið upp hafi ekki verið rétt, síðasta lykilorðið hafi fengist í mars og það líka verið rangt. Lögregla segir að þetta sé meðal þess sem valdi töfum á rannsókninni. Á sér enga hliðstæðu Lögreglan segir þó að það geti ekki talist óeðlilegt hversu lengi rannsókn hefur staðið yfir. Hún vísar til rannsóknar sambærilegra mála í Noregi því til stuðnings. Lögregla lýsir meintum brotum svo að þau séu mjög umfangsmikil og eigi sér enga hliðstæðu hér á landi. Quang Lée og kona hans eru grunuð um skipulagða glæpastarfsemi um margra ára skeið sem teygði sig þvert yfir landamæri. Yfir 30 hafa fengið stöðu brotaþola. Lögregla bendir á það í úrskurði sínum að sakborningar, þolendur og mörg vitni séu útlendingar og gögn málsins því að mestu leyti á öðrum tungumálum. Það kalli á þýðingar á gögnum auk yfirferðar þeirra. Quang Lé og kona hans voru handtekin 5. mars 2024 og úrskurðuð í gæsluvarðhald degi síðar. Þau voru í gæsluvarðhaldi til 13. júní það ár og hafa síðan sætt farbanni.

Share this article