Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Mark Rutte, hvatti aðildarríkin í dag til að missa ekki sjónar á stríðinu í Úkraínu og auka við framlög sín til stuðnings landinu. „Við verðum að tryggja að við getum veitt óhindraðan stuðning til Úkraínu. Við megum ekki missa sjónir á Úkraínu,“ sagði hann á fundi varnarmálaráðherra helstu bandamanna Úkraínu í Berlín í dag. Stríð Bandaríkjanna og Ísraels í Mið-Austurlöndum hefur fengið mikla athygli síðustu vikur og eru vaxandi áhyggjur innan Úkraínu að stuðningur bandamanna dvíni. Viðræður milli Úkraínu og Rússlands um stríðslok, sem Bandaríkin hafa haft milligöngu um, hafa engan árangur borið. Eftir að Donald Trump tók við völdum hafa Bandaríkin dregið verulega úr stuðningi sínum við Úkraínu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hafði orð á því í gær að vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum hefðu samningamenn Bandaríkjastjórnar engan tíma fyrir Úkraínu. Rutte sagði í dag að stuðningur við Úkraínu væri mikilvægari en nokkru sinni og að fá ríki bæru hitann og þungann af að styðja landið. Varnarmálaráðherra Úkraínu, Mykhailo Fedorov, sagði að veturinn hefði verið einn sá erfiðasti í sögu landsins. Rússlandsher hefði gert fjölda árása á landið í tilraun til að rústa orkuinnviðum.