Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hagur verkafólks að standa utan ESB

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.4.2026 | 5:57 Hagur verkafólks að standa utan ESB Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar hugnaðist ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið, er rætt var við hana. mbl.is/Eggert Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar deilir ekki þeirri skoðun Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra að aðild að Evrópusambandinu geti þjónað sem akkeri fyrir vinnumarkaðinn. Sólveig Anna segir það bjargfasta trú sína að hagsmunum verkafólks á Íslandi sé mikið betur borgið utan ESB, en hún hefur allt frá árinu 2008 fylgst mjög náið með þróun mála innan Evrópusambandsins. Á ársfundi Seðlabanka Íslands flutti Kristrún ræðu þar sem hún sagði: „Ef þjóðin velur að halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu gæti það verið akkeri fyrir vinnumarkaðinn og efnahagslífið, sem útheimti umbætur á íslenska vinnumarkaðsmódelinu.“ „Það væri óskandi að forsætisráðherra og aðrir í ríkisstjórninni ættu uppbyggilegt og gott samtal við fulltrúa verka- og láglaunafólks um það hvað þarf að gera akkúrat núna í stað þess að láta sem lausnina á þeim fjölbreyttu vandamálum sem plaga líf vinnuaflsins hér sé að finna í faðmi Evrópusambandsins,“ segir Sólveig Anna í samtali við Morgunblaðið um orð forsætisráðherra. Ekkert lúxuslíf í ESB „Ef við skoðum stöðu verka- og láglaunafólks í löndunum sem tilheyra Evrópusambandinu, þá er það svo sannarlega ekki svo að þar dragist upp mynd einhvers lúxuslífs og mikilla þæginda, þvert á móti: Mikið atvinnuleysi, mikil og almenn aðför að réttindum verkafólks, mjög lág aðild að verkalýðsfélögum, sérstaklega í samanburði við Ísland, og svo mætti áfram telja. Mín bjargfasta trú og afstaða er sú að hagsmunum verkafólks á Íslandi sé miklu betur borgið utan Evrópusambandsins með það vinnumarkaðsmódel sem við höfum nú.“ Hún viðurkennir þó að íslenska vinnumarkaðsmódelið sé ekki gallalaust. „Þannig er það bara með öll kerfi. En það sem er gott við íslenska vinnumarkaðsmódelið er að hér er mikil og rík stéttarfélagsaðild og að verka- og launafólk hefur í raun mikil tækifæri til þess að taka þátt í starfi verkalýðsfélaganna til þess að koma þar saman á lýðræðislegum vettvangi og sjálft móta kröfur um það hvað það vill fá greitt fyrir sína vinnu. Þetta er ekki eitthvað sem ég á þessum tímapunkti gæti sagt væri gott fyrir okkur að missa. Þvert á móti tel ég að það sé mjög mikilvægt að við fáum að halda í þetta vinnumarkaðsmódel, að við fáum áfram að nýta þau lýðræðislegu réttindi, þau lagalegu og stjórnarskrárvörðu réttindi sem við höfum nú til þess einmitt að hafa mikil og bein áhrif á það hvernig launakjörum okkar er háttað,“ segir Sólveig Anna. Fylgst lengi með þróun mála Stjórnmálamenn hlynntir aðild að ESB stilla sumir hverjir umræðunni þannig upp að sérhagsmunaöfl reyni að standa í vegi fyrir því að þjóðin fái tækifæri til þess að „vita meira“. Talar þú fyrir einhver sérhagsmunaöfl? „Það má auðvitað í öllum málum halda því fram að einhver sérhagsmunaöfl séu að verki og auðvitað er það svo að fulltrúar hinna og þessara hópa reyna að beita sér og tryggja að málefni nái fram að ganga með þeim hætti sem þeim hentar best. En það er að sjálfsögðu mjög fjarstæðukennt að reyna að halda því fram að afstaða mín gagnvart Evrópusambandinu byggist á einhverju sérhagsmunapoti, svo er auðvitað ekki. Ég byggi mína afstöðu á því að hafa frá árinu 2008 fylgst mjög náið með þróun mála innan Evrópusambandsins, fylgst mjög náið með því til dæmis hvernig farið var með almenning í þeim löndum innan Evrópusambandsins sem urðu hvað verst úti úr fjármálakreppunni 2008. Það er ekkert sérhagsmunapot þarna á ferð, heldur bara kalt mat á því hvað best er fyrir möguleika verka- og láglaunafólks til þess að hafa raunveruleg áhrif á sín tilveruskilyrði.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Eygja gróða vegna endurkomu Dion Harmleikur á leik á Englandi „Kastað eins og hverri annarri kúkableyju“ Þjónusta milljónir manna í Kína Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Ætla ekki að kæra ákvörðun um meintan eltihrelli Lofað upp í ermina á Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Lést eftir fall í Ölfusá Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Þjónusta milljónir manna í Kína „Þetta er gríðarlega áhugaverður sigur“ Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Hornbjarg er ekki þjóðlenda Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lést eftir fall í Ölfusá Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Eygja gróða vegna endurkomu Dion Harmleikur á leik á Englandi „Kastað eins og hverri annarri kúkableyju“ Þjónusta milljónir manna í Kína Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lofað upp í ermina á Alþingi Fólkið mun á endanum gefast upp Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Lést eftir fall í Ölfusá Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Þjónusta milljónir manna í Kína „Þetta er gríðarlega áhugaverður sigur“ Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Hornbjarg er ekki þjóðlenda Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lést eftir fall í Ölfusá Þekkt leikkona styður Grindavík

Share this article