Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir að ekki sé heil brú í skýringum framkvæmdastjóra Landspítala um ástæður þess að honum var sagt upp starfi fyrir skömmu. Þetta skrifar Ragnar í færslu sem hann birti á Facebook í gærkvöld en hann átti fund með Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra spítalans, í gær þar sem Ragnar fékk afhent uppsagnarbréf. Ragnar telur að störf hans sem formaður Læknafélags Reykjavíkur, sem sé stéttarfélag lækna, hafi átt þátt í uppsögninni og að störf hans væru einskins metin. Ragnar staðfestir að honum hafi verið boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og þar með falli þau rök niður að starf hans hafi verið lagt niður vegna ríkrar aðhaldskröfu. Hann segir að sér sé ekki fært að auka við sig starfshlutfall á spítalanum vegna annarra starfa. „Ég hefði glaður haldið óbreyttri stöðu líkt og ég hef oft nefnt áður. Ég trúði vart eigin eyrum. Um lögmæti þessa gjörnings verður látið á reyna,“ skrifaði Ragnar í færslunni. Ragnari Frey var sagt upp störfum á Landspítalanum 8. apríl. Hann starfaði sem sérfræðingur í almennum lyflækningum í 33% hlutastarfi. Skýring uppsagnarinnar var sú að uppsögnin tengdist sparnaðarkröfu spítalans.