Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tveggja daga verkfall hjá Lufthansa

Read Full Article →

Tveggja daga verkfall hefst í dag hjá starfsmönnum Lufthansa en á vef Aerotimes segir að verkfallið hófst um miðnætti í nótt og standi yfir til miðnættis á morgun. Þýska flugfélagið hefur þegar aflýst ferðum til að draga úr áhrifum. Verkfallið er boðað af Vereinigung Cockpit (VC), stærsta stéttarfélagi atvinnuflugmanna í Þýskalandi, og er verkfallið talið marka stigmögnum í kjaradeilum hjá félaginu. Gert er ráð fyrir að verkfallið trufli verulega flugumferð í Þýskalandi og þá sérstaklega á helstu flugvöllum félagsins, þar á meðal Frankfurt og Munchen. „Verkfall er alltaf síðasta úrræði til að koma hreyfingu á misheppnaðar samningaviðræður. Við hefðum helst viljað sleppa því, sérstaklega með hliðsjón af þeim áhrifum sem það hefur á farþega og samstarfsfólk okkar. Ábyrgðin liggur þó hjá vinnuveitandanum,“ segir Andreas Pinheiro, forseti VC.

Share this article