Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kosningaferðalag hefst í næstu viku

  • What: Coverage of local elections in Iceland.
  • Impact: No direct impact on cybersecurity or consumer devices.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 9:36 Kosningaferðalag hefst í næstu viku Sólrún I. Ragnardóttir, Andrés Magnússon, Andrea Sigurðardóttir, Stefán E. Stefánsson og Fjóla K. Guðmundsdóttir munu halda utan um umfjöllun Morgunblaðsins af sveitarstjórnarkosningunum 2026. mbl.is/Karítas Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kristrún kynnir útspil Samfylkingarinnar Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur Anna Sigríður leiðir lista Vinstri grænna og óháðra » Fleiri tengdar fréttir Í dag eru sléttar fimm vikur þar til efnt verður til kosninga í sveitarfélögum landsins. Eru þau 62 talsins og af öllum stærðum og gerðum. Hið fjölmennasta er Reykjavík með tæplega 140 þúsund íbúa en fámennast er Tjörneshreppur þar sem íbúarnir eru 54 talsins. Sem fyrr mun Morgunblaðið ásamt öðrum miðlum Árvakurs gera kosningabaráttunni fram undan ítarleg skil, sem og varpa ljósi á úrslit kosninga þegar þau liggja fyrir. Verður áhersla lögð á að kynna áherslumál framboða og þær áskoranir sem kjósendur telja helst að kjörnir fulltrúar sínir muni standa frammi fyrir á komandi kjörtímabili sem renna mun sitt skeið árið 2030. Fjórir stórir fundir Rætt verður við frambjóðendur vítt og breitt um landið. Þannig verður boðað til fjögurra borgarafunda á landsbyggðinni. Fyrst í Vestmannaeyjum næstkomandi miðvikudagskvöld, þá á Ísafirði viku síðar, 22. apríl. Á Eskifirði 29. apríl og að lokum Akureyri 7. maí. Á þessum fundum munu Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða við oddvita þeirra framboða sem bjóða fram á viðkomandi stöðum. Verða þættirnir teknir upp og þeir síðan sendir út degi síðar á mbl.is. Þá mun samantekt um fundina birtast í Morgunblaðinu að morgni föstudags í viðkomandi viku. Kappræður í myndveri Þá verður efnt til kappræðna milli frambjóðenda í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum. Þangað verður oddvitum framboða á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi sveitarfélögum boðið til þátttöku og verða þeir þættir birtir á síðustu vikunum fyrir kosningar. Síðustu kappræðurnar munu fara fram í beinni útsendingu tveimur dögum fyrir kjördag en þar munu leiðtogar flokkanna í Reykjavík leiða saman hesta sína. Hús tekið á fleirum Á komandi fjórum vikum mun Morgunblaðið einnig taka hús á frambjóðendum vítt og breitt um landið, allt frá Ísafirði til Hornafjarðar og frá Ölfusi til Vopnafjarðar. Verða það viðtöl í formi hlaðvarpa og verða þeim gerð ítarleg skil á mbl.is og í blaðinu þegar við á. Fyrsta sveitarfélagið sem sótt verður heim er Hornafjörður. Á síðustu árum hefur Morgunblaðið í auknum mæli nýtt sér hlaðvarpsformið til þess að miðla viðtölum og umfjöllun af fjölbreyttum toga. Það var gert í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 og eins í kringum mikla hringferð sem efnt var til ári síðar þegar blaðið fagnaði 110 ára útgáfustarfi sem hófst 2. nóvember 1913. Er það til marks um síbreytilegt fjölmiðlaumhverfi og hvernig tækninýjungar fjölga tækifærum til miðlunar upplýsinga til almennings. Fyrrnefnd umfjöllun staðfestir einnig hvernig ný tækni og nýjar leiðir í þessum efnum styðja við klassíska fjölmiðlun og miðlarnir geta unnið afar vel saman og ýtt undir styrkleika hver annars. Ólíkar áskoranir Ljóst er að sveitarfélögin hringinn um landið takast á við ólík verkefni þótt lögbundin þjónusta hvíli á þeim öllum sem einu. Ræður ýmsu munurinn á milli þeirra, meðal annars mannfjöldi, fjárhagsleg staða þeirra og landfræðileg lega. Má sem dæmi í því skyni nefna að Seltjarnarnes er aðeins um 2,3 ferkílómetrar að stærð en þar búa ríflega 4.600 manns. Í Skútustaðahreppi sem er nærri 3.000 sinnum stærri að flatarmáli er íbúafjöldinn hins vegar tæplega ríflega ellefti hluti af fjöldanum á Seltjarnarnesi. Stjórnmálin leiða fram áherslumun milli manna og hvaða leiðir þeir telja bestar til þess að efla starfsemi sinna sveitarfélaga og er umfjölluninni næstu fimm vikurnar ætlað að varpa ljósi á þennan mun. Er það besta leiðin til þess að tryggja framgang lýðræðisins sem á sér eina birtingarmynd í hinum reglubundnu sveitarstjórnarkosningum á fjögurra ára fresti. Að Reykjavík undanskilinni eru sjö sveitarfélög með fleiri en 10 þúsund íbúa. Þrjú þeirra teljast til landsbyggðarinnar, Akureyri, Árborg og Reykjanesbær en hin eru Kópavogur, Mosfellsbær, Garðabær og Hafnarfjörður. Dagmál og Spursmál Sem fyrr mun þáttagerð á vettvangi mbl.is halda sínu striki. Þannig verða ýmsum þáttum kosninganna gerð skil, jafnt á vettvangi Dagmála og Spursmála en síðarnefndi þátturinn er ætíð á dagskrá á föstudögum klukkan 14 og aðgengilegur í kjölfarið á helstu hlaðvarpsveitum og mbl.is. Dagmál eru sem fyrr dagskrárefni sem aðeins er ætlað áskrifendum Morgunblaðsins en þeir geta nálgast viðtölin þaðan með aðgangsorði á vefnum eða í Mogga-appinu. Kjörskrá tekur á sig mynd Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi sem þeir eiga skráð lögheimili í 38 dögum áður en til kjördags kemur. Færi fólk lögheimili sitt eftir þann tíma breytir það ekki skráningu á kjörskrá. Samkvæmt ákvæðum kosningalaga eiga sveitarstjórnir að láta kjörskrár liggja frammi á skrifstofum sínum til sýnis. Þar geta kjósendur farið yfir og kannað hvort þeir eru á kjörskrá. Þá hefur dómsmálaráðuneytið einnig í samráði við þjóðskrá komið upp vef þar sem hægt er að nálgast samsvarandi upplýsingar. Þjóðskrá hefur enn ekki birt á vef sínum endanlega kjörskrá vegna kosninganna í komandi mánuði en úr henni mun verða mögulegt að lesa ýmislegt forvitnilegt. Þannig má t.d. nefna að í síðustu sveitarstjórnarkosningum var heildarfjöldi kjósenda 277.127 en þar af voru erlendir ríkisborgarar 31.703. Karlar voru tæplega 50,7%, konur voru 49,2% og kynsegin einstaklingar voru 0,1% kosningabærra manna. Grindavík sér á báti Í kjölfar hinna miklu jarðelda í kringum og í Grindavík sjálfri varð upplausn á starfsemi sveitarfélagsins. Fluttu íbúar lögheimili sín í stríðum straumum frá bænum meðan óheimilt var að búa á svæðinu. Sérstök ákvæði hafa verið sett um fyrirhugaðar sveitarstjórnarkosningar í Grindavík sem gera fólki sem flutt hafði lögheimili sitt á braut kleift að greiða atkvæði í sínu gamla sveitarfélagi. Til þess þarf þó að uppfylla nokkur skilyrði. Í fyrsta lagi þarf fólk að hafa lögheimili á Íslandi við umsókn og í öðru sveitarfélagi en Grindavík. Lögheimili þarf að hafa verið í Grindavík þann 9. nóvember 2023 og umækjendur þurfa einnig að vera íslenskir eða norrænir ríkisborgarar á kjördegi, þ.e. 16. maí. Einnig gildir ákvæðið um aðra erlenda ríkisborgara sem hafa samfellda þriggja ára búsetu á Íslandi, miðað við fyrrnefndan kjördag. Tíu stærstu sveitarfélögin Reykjavíkurborg, 129.804 íbúar Kópavogsbær, 40.286 íbúar Hafnarfjarðarkaupstaður, 32.398 íbúar Reykjanesbær, 22.697 íbúar Garðabær, 20.724 íbúar Akureyrarbær, 20.284 íbúar Mosfellsbær, 13.772 íbúar Sveitarfélagið Árborg, 12.671 íbúi Akraneskaupstaður 8.440 íbúar Múlaþing, 5.235 íbúar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á föstudaginn Framboðsfrestur rann út í gær Frestur sem framboð og flokkar höfðu til þess að skila inn framboðslistum rann út í gær. Mun landskjörstjórn nú fara yfir gögn þar að lútandi og meta lögmæti þeirra. Snýr það meðal annars að því hvort framboðin hafi skilað nægilegum fjölda meðmælenda. Í smæstu sveitarfélögum þurfa þau að minnsta kosti 10 meðmælendur en í Reykjavík er þörf á 160 slíkum. Og hún þarf að hafa hraðar hendur enda hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar að viku liðinni, þ.e. föstudaginn 17. apríl. Þann kostinn geta þeir kjósendur nýtt sér sem gera ekki ráð fyrir að vera í færi við kjördæmi sitt þegar stóri dagurinn, 16. maí, rennur upp. Morgunblaðið/Ólfaur Árdal Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kristrún kynnir útspil Samfylkingarinnar Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur Anna Sigríður leiðir lista Vinstri grænna og óháðra » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kosningaferðalag hefst í næstu viku Óttast skort á eldsneyti innan mánaðar Aðgerðirnar eðlilegar í ljósi hækkana Varað við erfiðum akstursskilyrðum á fjallvegum Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Aðgerðunum fálega tekið Ungur faðir vann sjö milljónir Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Snæfellsbær framlengir framboðsfrest Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða

Share this article