UNICEF segir árásir Ísraela á Líbanon hafa tortímandi og ómannúðleg áhrif á börn, mörg hafi misst ástvini og séu á vergangi. Loftið í Beirút, höfuðborg Líbanons, er mettað af lykt af brennisteini og byssupúðri. Eyðileggingin er mikil eftir árásir Ísraelshers síðustu daga og hreinsunarstarf stendur yfir. Að sögn yfirvalda í Líbanon drap Ísraelsher yfir 300 manns á miðvikudag og særði 1.150. Ísraelar hafa haldið árásum á Líbanon áfram í dag. Hezbollah hefur einnig gert árásir á Ísrael. Unicef varar við áhrifum árásanna á börn, áhrifin séu tortímandi og ómannúðleg. Síðan 2. mars hafi Ísraelar drepið eða sært um 600 börn í Líbanon. Þá sé yfir ein milljón manna á vergangi, þar af 390.000 börn. Börn séu dregin særð úr rústum heimila sinna og mörg hafi orðið viðskila við fjölskyldur sínar. Áfallið sé mikið við að missa ástvini og heimili. Alþjóðleg mannúðarlög eru skýr, segir í tilkynningu frá Unicef: Það eigi alltaf að vernda almenna borgara, og þar með börn. Ísraelar hafa drepið eða sært 600 börn í Líbanon síðan 2. mars. Í tilkynningu minnir Unicef á mikilvægi þess að virða alþjóðalög. Vernda eigi almenna borgara, og þar með börn. Samkomulag um tímabundið vopnahlé í Mið-Austurlöndum til tveggja vikna náðist á þriðjudagskvöld eftir hótanir Bandaríkjaforseta um að eyða siðmenningu Írana. Ísraelar gerðu árásirnar á Líbanon aðeins nokkrum klukkutímum síðar. Íranar segja að vopnahléið eigi einnig að ná til Líbanons. Áætlað er að sendinefndir Ísraels og Líbanons ræðist við í Washington í næstu viku. Um helgina verða viðræður milli Bandaríkjanna og Írans í Pakistan.