Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samkeppnin eykst á hljóðbókamarkaði

Read Full Article →

Ný íslensk hljóðbókaveita hefur litið dagsins ljós undir heitinu Sagnaland en samkvæmt tilkynningu frá hljóðbókaveitunni, sem fór í loftið í dag, er tilgangurinn að gera hljóðbókaheiminn betri fyrir bæði höfunda og hlustendur. Sagnaland býður upp á mismunandi áskriftarleiðir og geta áskrifendur valið á milli 10 klukkustunda áskriftar, 20 klukkustunda áskriftar eða ótakmarkaðrar áskriftar. Stofnendur Sagnalands eru Friðrik Salvar Bjarnason og Lúðvík Páll Lúðvíksson en þeir segja að stafrænn lestur og hlustun hafi færst sífellt í aukana á Íslandi. „Á hinum Norðurlöndunum búa neytendur við virka samkeppni á hljóðbókamarkaði sem hefur leitt til fjölbreyttari áskriftarleiða og aukinna gæða. Nú býðst íslenskum hlustendum nýr valkostur sem er hannaður frá grunni fyrir íslenskar aðstæður.” Steindi Jr. les meðal annars bókina Stúfur. © Aðsend mynd (AÐSEND) Þeir bæta við að Sagnaland leggi einnig áherslu á framleiðslu nýs efnis, þar á meðal bókmenntaþætti og afþreyingu frá þekktum einstaklingum. Þar má nefna Bókaspjall Sveppa og Bókaklúbb Kötlu Ársælsdóttur. Þekktir listamenn á borð við Steinda Jr., Emmsjé Gauta, GDRN og Sverri Bergmann taka það einnig að sér að lesa barnasögur. Sagnaland hefur jafnframt gert samninga við helstu forlög landsins og verður einnig starfrækt sem stafræn bókabúð. Í mörgum tilfellum verður hægt að kaupa nýjustu bækurnar í stakri sölu um leið og þær koma út í prenti eða um leið og þær eru lesnar inn. Þegar sölutímabilinu á nýrri bók er lokið fer hún beint inn á bókasafnið og verður hluti af áskriftinni.

Share this article