Strætó á Akureyri.RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir Farþegum á strætóleið 56 á milli Akureyrar og Egilsstaða fjölgaði um 88% á síðasta ári frá árinu áður samkvæmt frétt á Austurfrétt.is . 1.929 farþegar ferðuðust með strætó þessa leið á síðasta ári, sem er um 900 fleiri farþegar en árið áður. Alls nýttu 7.884 farþegar sér ferðir með strætó um Austurland í fyrra. Farþegum fjölgaði um 5% á leiðinni milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar en fækkun varð á fjölda farþega á öðrum leiðum í landshlutanum. Vegagerðin sér um rekstur strætisvagna á landsbyggðinni. Þrátt fyrir tilraunir til að fjölga farþegum hefur þeim víðast hvar haldið áfram að fækka ár frá ári.