Innlent | mbl | 8.4.2026 | 13:31 Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra. mbl.is/María Matthíasdóttir Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Afstaðan í andstöðu við kjósendur Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði Ekki framhald á ESB-viðræðum Vill að upplýst verði um samningsmarkmið » Fleiri tengdar fréttir Albert Jónsson, einn reyndasti samningamaður Íslands á alþjóðavettvangi, segir samningsstöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu ekki sterka, verði umsókn landsins gagnvart sambandinu endurnýjuð. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Albert í hlaðvarpinu Þjóðmál þar sem rætt er um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu sem ríkisstjórn Íslands hefur boðað þann 29. ágúst næstkomandi. Í viðtalinu bendir stjórnandi þáttarins, Gísli Freyr Valdórsson á að þegar ríkisstjórnin sem sat 2009-2013 sótti um aðild var annar tveggja stjórnarflokka á móti aðild að ESB. Núverandi stjórnvöld séu sömuleiðis klofin til málsins þar sem yfirlýst stefna Flokks fólksins sé að Ísland haldi sig utan ESB. Er með mannskap á Íslandi sem fylgist með „Já og þetta veit Evrópusambandið að sjálfsögðu. Það er með mannskap hérna sem fylgist með þannig að þetta er ekki sterk samningsstaða. Ég lít svo á og ég hef rifjað upp þau ummæli að það sé þannig litið á þjóðaratkvæðagreiðsluna sem nú stendur fyrir dyrum að hún á rætur í þessari sögu. Þessu veika umboði sem ríkisstjórnin hafði á þeim tíma og hreinlega ekkert umboð, það var ekki þingmeirihluti, það var ekki neitt bak við þetta. Þannig að því leyti er þjóðaratkvæðagreiðslan hið besta mál en ég held að hún sé bara óþörf,“ segir Albert. Yrðu algjörlega einstakar viðræður Bendir hann á að eins og núverandi ríkisstjórn Íslands leggur fyrirhugaðar aðildarviðræður upp yrðu slíkar viðræður algjörlega einstakar í sögu sambandsins. Krafan um undanþágur í lykilmálum séu langsóttur draumur. „Það verður að vera heiðarleiki hérna. Og almenningur á það skilið að það sé talað hreint út um það að ef þetta er gert svona þá er það alveg uniqe, alveg einstakar aðildarviðræður í sögu Sambandsins. Og þá spyr auðvitað venjulegt fólk: er það eitthvað raunsætt, og það hlýtur að vera hægt að fá skýrt svar við því og það þarf ekki að fara í mörghundruð milljóna þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrir mér er það rosalega einfalt mál því ég þykist sjá að þetta sé algjört grundvallaratriði en það er enginn að tala um þetta svona.“ Færra sameiginlegt en látið er með Og í því ljósi nefnir Albert að Ísland eigi minna sameiginlegt í þessum grundvallarmálum en margur haldi fram. „Annað líka því við erum að tala um grundvallaratriði. Um hvað snýst milliríkjasamstarf? Nú einhverja sameiginlega hagsmuni. Alla vega ef það á að vera pródúktívt og skila einhverju og allir glaðir og kátir. Og það er forsenda þarna. En við eigum ekkert sameiginlegt með þessu fólki í sjávarútvegsmálum, augljóslega. Það eru allir sammála um það. Við eigum ekkert sameiginlegt með þeim í orkumálum. Við erum með 80% af okkar orku í endurnýjanlegum orkugjöfum, þeir eru í einhverjum rúmlega 20%. Þannig að við erum bara á allt öðrum stað þannig að þetta getur ekki hvílt á sameiginlegum hagsmunum um það sem við lítum á sem lykilatriði. Þess vegna er það eðlileg krafa eins og ráðherrarnir setja fram að við fáum undanþágur frá þessu og það er ekki verið að biðja ESB um lítið,“ segir Albert. Yrði að komast hjá loftslagsstefnu ESB Hann nefnir í þessu sambandi að Ísland gæti aldrei gengið í Evrópusambandið öðruvísi en að komast undan þeim loftslagsmarkmiðum sem sett hafi verið á vettvangi þess. Þær kröfur sem gerðar séu til ríkis sem skipt hafi út kolum og olíu fyrir rafmagn og heitt vatn að 80% hluta verði fyrir svo gríðarlegum kostnaði við að ná fram meiri árangri að íslenska þjóðarbúið gæti aldrei setið undir slíku. Ríki þar sem mun meira verk sé að vinna í þessum efnum geti með mun hagkvæmari og einfaldari hætti náð þeim markmiðum sem lögð eru fyrir þau á grundvelli stefnunnar. Albert hefur fjallað ítarlega um Kyoto-samninginn svokallaða, meðal annars á heimasíðu sinni , sem Íslendingar tóku þátt í á sínum tíma en hann var ráðgjafi stjórnvalda í þeirri vinnu. Þá var sá árangur sem Ísland hefur náð í loftslagsmálum viðurkenndur, en horfið var frá þeirri viðurkenningu í síðari tíma samningum sem íslenska ríkið undirgekkst. Tengdar fréttir Ísland og ESB Afstaðan í andstöðu við kjósendur Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ragnar Þór telur skynsamlegt að sjá hvað er í boði Ekki framhald á ESB-viðræðum Vill að upplýst verði um samningsmarkmið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Mikið mannfall í Líbanon Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Margvíslegt foktjón varð víða um land Hverju er Trump að hóta? Ljósblossar á tunglinu Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Mikið mannfall í Líbanon Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margvíslegt foktjón varð víða um land Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Þak fauk af í heilu lagi Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón